RVK Feminist Film Festival

RVK Feminist Film Festival er ný alþjóðleg kvikmyndahátíð sem verður haldin í Reykjavík 16. – 19. janúar 2020. Hátíðin verður haldin í Bíó Paradís, Icelandair Hótel Marina og Norræna húsinu.

Tilgangur RVK Feminist Film Festival er að gera kvenkyns leikstjóra sýnilegri og á hátíðinni verða einungis sýndar kvikmyndir eftir kvenkyns leikstjóra.

„Með hátíðinni langar okkur að skapa rými fyrir konur í kvikmyndabransanum til að tengjast, hvetja til umræðna og samvinnu og koma kvikmyndum eftir kvenleikstjóra meira á framfæri. Auka kynjajafnrétti í kvikmyndaheiminum nær og fjær. Sjá fleiri sögur um konur, eftir konur með kvenpersónum. Ungar kvikmyndagerðarkonur í dag þurfa fyrirmyndir í bransanum og er þessi hátíð mikilvægur liður í þeirri þróun,“ segir Maríu Leu Ævarsdóttur, hátíðarstjóri og stofnandi RVK Feminist Film Festival. 

Á laugardaginn verður haldinn viðburður á Icelandair Hótel Marina á milli kl. 17 og 20, þar sem hátíðin verður kynnt nánar.

Auglýsing

læk

Instagram