Samherji skellir skuldinni á Jóhannes

„Það voru okk­ur mik­il von­brigði að kom­ast að því að Jó­hann­es Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­maður Sam­herja­fé­lag­anna í Namib­íu, virðist hafa tekið þátt í gagn­rýni­verðum viðskipta­hátt­um og hugs­an­lega flækt Sam­herja í viðskipti sem kunna að vera ólög­mæt.“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í yfirlýsingu sem barst á fjölmiðla eftir umfjöllun þáttarins Kveiks í gærkvöldi.

En í þættinum er því haldið fram að vísbendingar séu um að Samherji hafi greitt embættismönnum í Namibíu mörg hundruð milljóna króna í mútur til að komast yfir kvóta þar í landi.

Jóhannes Stefánsson,fyrrverandi verkefnastjóri Samherja í Namibíu, var aðalviðmælandinn í þættinum. Jóhannes hefur fengið stöðu uppljóstrara í Namibíu vegna spillingarannsóknar á málefnum tengdum Samherja þar í landi. Hann fullyrðir það að Samherji hefði gert hvað sem er til að komast yfir kvóta í Namibíu og mútugreiðslur hefðu verið stundaðar grimmt.

Í yf­ir­lýs­ingu Sam­herja seg­ir að Jó­hann­esi hafi verið sagt upp störf­um á ár­inu 2016 eft­ir að hann mis­fór með fé og hegðaði sér með ófor­svar­an­leg­um hætti.

Hér má sjá yfirlýsingu Samherja í heild sinni:

„Það voru okk­ur mik­il von­brigði að kom­ast að því að Jó­hann­es Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri og stjórn­ar­maður Sam­herja­fé­lag­anna í Namib­íu, virðist hafa tekið þátt í gagn­rýni­verðum viðskipta­hátt­um og hugs­an­lega flækt Sam­herja í viðskipti sem kunna að vera ólög­mæt,“ seg­ir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, eft­ir þátt Rík­is­út­varps­ins þar sem marg­vís­leg­ar ásak­an­ir komu fram á hend­ur fyr­ir­tæk­inu.

Jó­hann­esi Stef­áns­syni var sagt upp störf­um á ár­inu 2016 eft­ir að hann mis­fór með fé og hegðaði sér með ófor­svar­an­leg­um hætti. Nú hef­ur hann viður­kennt að hafa tekið þátt í ólög­legri starf­semi á meðan hann stýrði dótt­ur­fé­lög­um Sam­herja í Namib­íu.

Þar til ný­lega höfðum við enga vitn­eskju um um­fang og eðli þeirra viðskipta­hátta sem Jó­hann­es stundaði og óvíst er hvort þeir hafi verið raun­veru­lega með þeim hætti sem hann lýs­ir. Eins og við höf­um þegar greint frá höf­um við ráðið alþjóðlegu lög­manns­stof­una Wik­borg Rein í Nor­egi til að rann­saka starf­sem­ina í Namib­íu. Í þeirri rann­sókn verður ekk­ert und­an­skilið og mun­um við upp­lýsa um niður­stöður henn­ar þegar þær liggja fyr­ir.

„Okk­ur er illa brugðið. Ekki ein­ung­is við það að Jó­hann­es staðhæfi að hann hafi tekið þátt í starf­semi af því tagi sem hann lýs­ir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásök­un­um sín­um að fyrr­um sam­starfs­fólki sínu hjá Sam­herja. Þetta eru ekki vinnu­brögð sem við könn­umst við,“ seg­ir Þor­steinn Már Bald­vins­son.

Sam­herji hef­ur 35 ára far­sæla viðskipta­sögu víða um heim. Við höf­um ávallt lagt okk­ur fram við um að starfa í sam­ræmi við lög og regl­ur á hverj­um stað. Sam­herji mun, hér eft­ir sem hingað til, starfa með hlutaðeig­andi stjórn­völd­um sem kunna að rann­saka um­rædd viðskipti í namib­ísk­um sjáv­ar­út­vegi. Ef slík rann­sókn mun eiga sér stað hef­ur Sam­herji ekk­ert að fela. 

Auglýsing

læk

Instagram