Sáttmáli hestafólks og annarra vegfarenda undirritaður

Að undanförnu hefur umræða um árekstra milli hestafólks og annarra vegfarenda verið áberandi, sérstaklega á samfélagsmiðlum. 

Í sumum tilfellum hafa ásakanir gengið á víxl og varpað skugga á uppbyggilega gagnrýni og lausnamiðaða umræðu. 

Nú hefur hestafólk og fulltrúar annarra vegfarendahópa tekið höndum saman um að undirrita sáttmála sem að getur legið til grundavallar fræðslu fyrir alla hlutaðeigandi vegfarendahópa. Með gerð sérstakrar fræðslumyndar og sáttmálanum er leitast við að fræða almenning um það hvernig allir þessir hópar geti stundað heilbrigða og örugga útiveru í sátt og samlyndi.

 Sáttmáli milli hestafólks og annarra vegfarenda um umferðaröryggi verður undirritaður á blaðamannafundi í Félagsheimili Fáks í Víðidal  laugardaginn 8. maí kl. 10:00. 

Fundinn opnar Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. 

  • Á síðasta ári urðu tíð slys á hestafólki, sum þeirra alvarleg, og oft á þeim stöðum þar sem umferð ríðandi fólks og önnur umferð skarast. Árið 2020 voru 160 hestaslys skráð hjá Bráðamóttöku Landspítalans en almennt eru slík slys talin vanskráð.
  • Orsökin er yfirleitt þekkingarleysi og skortur á því að hestafólk setji sig í spor annarra og að aðrir vegfarendur setji sig í spor hestafólks. 
  • Ætlunin er því að hrinda af stað fræðsluátaki og undirrita sáttmála milli ólíkra vegfarendahópa og hestafólks með það að leiðarljósi að við öll tileinkum okkur tillitssemi, varúð og kurteisi. Að við setjum okkur í spor hvers annars. 
  • Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu, mun sýna og kynna nýja fræðslumynd á blaðamannafundinum, m.a. um eðli hestsins og möguleg viðbrögð hans við fólki og farartækjum.

Ætlunin með fræðsluátakinu er að vekja athygli á þörfum mismunandi vegfarendahópa, sérstöðu hestsins og rétti allra til að stunda útvist og komast leiðar sinnar með öruggum hætti. 

Eftirfarandi hópar hafa komið sér saman um „Sáttmála hestafólks og annarra vegfarenda“ og munu fulltrúar þessara vegfarendahópa undirrita hann á fundinum:

  • Landssamband hestamannafélaga 
  • Hjólreiðasamband Íslands 
  • Landssamtök hjólreiðamanna 
  • FÍB – Félag íslenskra bifreiðaeigenda 
  • Ökukennarafélag Íslands  
  • Sniglarnir  
  • Slóðavinir  
  • Félag ábyrgra hundaeigenda   
  • Skíðasamband Íslands  
  • Skíðagöngufélagið Ullur  
  • Frjálsíþróttasamband Íslands
  • Vegagerðin   
Auglýsing

læk

Instagram