Sex manns játa ást sína í beinni:„Ég hef fundið fyrir fiðrildum í maganum“

Í kvöld fer fram ástar­ráð­stefna í Tjarnar­bíó þar sem ástin í vísindum, trú og list verður könnuð og líkam­leg ein­kenni ástarinnar rann­sökuð.

„Þetta er örugg­lega fyrsta ástar­ráð­stefnan í heiminum og er í raun haldin í kringum fyrir­lestur pólska tauga­læknisins Bar­tosz Karasweski sem er að halda tölu um ást og líf­fræði,“ segir Elísa­bet Kristín Jökuls­dóttir, rit­höfundur og skipuleggjari ráðstefnunnar, í sam­tali við Fréttablaðið. „Hann ætlar að sýna á­hrif ástarinnar á heilann og vita hvort að sé hægt að mæla ástina í líkamanum.“ Munu sex manns játa ást sína í beinni á ráð­stefnunni, þeirra á meðal verða Páll Óskar, Auður Styrk­árs­dóttir, Ilmur Kristjáns­dóttir og Stefán Ingvar Vig­fús­son

Sjálf segir Elísa­bet þó nokkrum sinnum hafa fundið fyrir kröftum ástarinnar á eigin skinni. „Ég hef fundið fyrir fiðrildum í maganum og hita í brjóstinu, svo hef ég tvisvar sinnum fengið í hnén,“ segir hún en segist þó einungins kikna í hjnánum þegar hún er í maníu. „Ég fékk svona líka í hnén gagn­vart gæslu­manni á geð­deild,“ segir Elísa­bet hlægjandi.

„Ástin er til­komin til að koma fólki út úr ein­mana­leika, með henni brotna veggirnir á milli okkar og af­hjúpa okkur.“ Eitt það fal­legasta við ástina sé að hún gerir ekki upp á milli kosta og galla. „Það er mikil gjöf í heimi þar sem fólk dæmir hvort annað og reynir að að­greina sig hvort frá öðru,“ bendir Elísa­bet á.

Að hennar mati eins­korðast ástin ekki við börn maka eða fólk. „Við elskum ekki bara maka og börn heldur líka vinnuna, jörðina, og ég elska Ó­feigs­fjörð og eld­gos.“

Elísabet segir að gestir ráðstefnunnar muni annaðhvort ráfa þaðan út með ást í hjarta eða hnefann á lofti. „Það er nefni­lega þannig að annað hvort fá þeir upp í kok af ástinni eða þá að þeir eru með fiðrildi í hjartanu.“

En þó vonar hún að lokaniðurstaða ráðstefnunnar í kvöld verði fiðrildi sem flögrar í salnum og enginn veit hvaðan kom. „Ég yrði voða­lega á­nægð með það.“

Ráðstefnan er eins og fyrr sagði í Tjarnarbíó í kvöld og hefst kl. 20.00.

Auglýsing

læk

Instagram