today-is-a-good-day

Skúli vill Svein Andra burt

Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW air, hefur gert kröfu til Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sveini Andra Sveinssyni verði vikið frá störfum sem skiptastjóra þrotabús flugfélagsins.

Skúli byggir á því að skiptastjórinn hafi veitt rangar og villandi upplýsingar um mikilvæg málefni búsins, bæði í fjölmiðlum og á skiptafundum. Hafi hann þannig rýrt verulega það traust sem til hans þurfi að ríkja sem skiptastjóra.

Skúli vísar annars vegar til umfjöllunar Fréttablaðsins um kaup Ballarin á eignum þrotabúsins en haft var eftir Sveini Andra í fréttinni að uppsett kaupverð væri þegar greitt.

Á skiptafundi hefðu skiptastjórar verið spurðir að því hvort einhver tengsl væru milli þeirra og umrædds kaupanda og þeir svarað því að svo væri ekki, hvorki við kaupandann né forsvarsmenn hans. Við nánari athugun hafi þó komið í ljós að lögmaðurinn Páll Ágúst Ólafsson, sem gætti hagsmuna umrædds kaupanda hér á landi, hafi starfsstöð í sama húsi og Sveinn Andri og deili með honum kaffistofu, fundarherbergi og prenturum.

Skúli byggir kröfu sína einnig á meintri vanrækslu Sveins við upplýsingagjöf, bæði um skiptakostnað og þóknanir og á því að Sveinn Andri hafi tekið sér þóknun af fé búsins án þess að hafa til þess viðhlítandi heimild.

„Ég lít á þetta sem meðmæli,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, inntur eftir viðbrögðum við kröfu Skúla.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku.

Þetta kom fram á vef Fréttablaðsins.

Auglýsing

læk

Instagram