Smárabíó og Háskólabíó – Síðustu sýningar í kvöld

Í ljósi samkomubanns munu Smárabíó og Háskólabíó loka um óákveðinn tíma, frá og með morgundeginum, á meðan samkomubannið er í gildi. Síðustu sýningarnar eru því í kvöld kl. 20:00. Þetta segir í tilkynningu kvikmyndahúsunum.

 

„Velferð starfsfólks og viðskiptavina okkar eru forgangsatriði og því var þessi ákvörðun tekin.

Við hlökkum mikið til að geta tekið á móti gestum aftur sem fyrst og skemmt fólki með bíómyndum, nýjustu VR tækninni, lasertag og fleira skemmtilegt. Við óskum ykkur góðrar heilsu og endilega pössum upp á hvort annað.”

Með kærri kveðju,Smárabíó og Háskólabíó.
Auglýsing

læk

Instagram