today-is-a-good-day

Styrmir Gunnarsson látinn

Styrm­ir Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðsins, lést í gær á heim­ili sínu við Mar­bakka­braut í Kópa­vogi, 83 ára að aldri. Hann hafði glímt við heilsuleysi í kjölfar heilablóðfalls sem hann fékk fyrr á árinu.

Styrm­ir starfaði mest­alla starfsævi sína á Morg­un­blaðinu en hann hóf þar störf blaðamaður 2. júní árið 1965. Hann varð aðstoðarrit­stjóri 1971, var ráðinn rit­stjóri 1972 og starfaði sem slíkur í 36 ár.

Styrmir var giftur Sigrúnu Finnbogadóttur sem lést 2016 og skilur eftir sig tvær dætur, Huldu Dóru og Hönnu Guðrúnu.

 

Auglýsing

læk

Instagram