Tilslakanir taka gildi á miðnætti

Heilbrigðisráðherra kynnti áformaðar breytingar á sóttvarnarreglum á fundi ríkisstjórnar í morgun, byggðar á minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. Tilslakanirnar taka gildi á miðnætti í kvöld.

Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns, nándarregla verður 1 metri, krár og skemmtistaðir mega opna að nýju og opnunartími þeirra og annarra veitingastaða verður lengdur um tvær klukkustundir. Heimilt verður að halda sitjandi viðburði fyrir 500 manns að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Takmarkanir í skólum verða að mestu óbreyttar. 

Breytingar frá og með 29. janúar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fari úr 10 í 50 manns.
  • Nándarregla fari úr 2 metrum í 1 metra.
  • Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af nándarreglu.
  • Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verði heimilt að hafa opið með 75% afköstum.
  • Íþróttakeppnir verði áfram heimilar með 50 þátttakendum og áhorfendur séu leyfðir á ný.
  • Hámarksfjöldi í verslunum geti mest orðið 500 manns.
  • Skemmtistöðum, krám, spilastöðum og spilakössum verði heimilað að opna á ný.
  • Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina kl. 00.00.
  • Á sitjandi viðburðum verði heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, viðhalda skuli 1 metra nándarreglu milli óskyldra aðila auk grímuskyldu. Ekki verði þörf á hraðprófum.
  • Í skólum verði óbreyttar takmarkanir, þó þannig að þær verði aðlagaðar framangreindum tilslökunum eftir því sem við á.
  • Reglugerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febrúar.
Auglýsing

læk

Instagram