Heppinn Íslendingur hlýtur rúmar 438 þúsund krónur

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld og flyst því vinningsupphæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. 11 miðahafar skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 29,7 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Eistlandi, Noregi, Slóveníu, Slovakíu, Póllandi, Finnlandi og fjórir í Þýskalandi. Fimmtán miðahafar skiptu svo með sér 3. vinningi og fær hver þeirra rúmlega 7,7 milljónir króna.

Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Svíþjóð, níu í Þýskalandi, tveir í Ungverjalandi og tveir í Finnlandi. Það var svo einn heppinn Íslendingur í áskrift sem var einn af þeim 88 sem skiptu með sér 4. vinningi og hlýtur hann rúmar 438 þúsund krónur í sinn hlut.

Tveir miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hvor. Annar miðinn var keyptur í Olís í Varmahlíð og hinn miðinn var í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram