Ungur íslenskur læknir bjargaði farþega

Ungur læknir að nafni Hlynur Davíð Löve bjargaði lífi farþega um borð í vél Icelandair síðustu nótt. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Vélin var á leið frá Alicante til Íslands þegar kallað var eftir lækni.

„Ég var sá eini sem gaf mig fram ásamt hjúkrunarfræðingi og saman eyddum við um það bil þremur tímum í að sinna sjúklingnum.“ Maðurinn komst lífs af og  telur Hlynur að sjúklingurinn muni ná sér.

Snögg handtök Hlyns, hjúkrunarfræðings og starfsfólks Icelandair björguðu líklegast lífi sjúklingsins.

Auglýsing

læk

Instagram