Útboðsþing Samtaka iðnaðarins í beinu streymi á morgun

Útboðsþing SI sem haldið er í samstarfi við Mannvirki – félag verktaka og Félag vinnuvélaeigenda fer fram í beinu streymi á morgun miðvikudaginn 27. janúar kl. 09.00-10.30. Á þinginu kynna fulltrúar 11 opinberra aðila fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir á árinu og fæst því gott yfirlit yfir helstu útboð ársins.

Fundarstjóri er Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Dagskrá

  • Setning – Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins
  • Reykjavíkurborg – Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Framkvæmdasýsla ríkisins – Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
  • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  • Orka náttúrunnar – Hildigunnur Jónsdóttir, forstöðuman verkefnastofu
  • Landsvirkjun – Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
  • Faxaflóahafnir – Inga Rut Hjaltadóttir, forstöðumaður tæknideildar
  • Vegagerðin – Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
  • Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
  • NLSH – Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
  • Veitur – Katrín Karlsdóttir, teymisstjóri verkefnastjóra
  • Isavia – Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri verkfræðideildar

Hlekkur á þingið:

https://vimeo.com/500878691/9b47427494

Auglýsing

læk

Instagram