Velti bifreið sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi

Lögreglan á Vesturlandi veitti ökumanni eftirför í gær frá Akrafjalli að Melahverfi og endaði eltingaleikurinn á því að maðurinn missti stjórn á bílnum og velti honum.

Skömmu áður hafði verið tilkynnt til lögreglunnar að bifreið hafi verið tekin ófrjálsri hendi við Gamla Kaupfélagið á Akranesi. Lögreglumenn á Akranesi mættu bifreiðinni á Akrafjallsvegi þar sem henni var ekið á 139 km hraða í átt að hringtorginu við Hvalfjarðargöng. Ökumanni bifreiðarinnar var gefið merki um að stöðva aksturinn, sem hann gerði ekki og var því bifreiðinni veitt eftirför.

Þrátt fyrir að lögreglan væri með forgangsljós tendruð þá jók ökumaðurinn ferðina og ók áfram út úr hringtorginu norður Vesturlandsveg á ofsahraða. Mikil umferð var á Vesturlandsvegi og skapaðist mikil hætta vegna þessa. Lögreglumenn komu síðan að bifreiðinni við gatnamótin að Melahverfi þar sem hún var utan vegar á hliðinni. Ökumaður var handtekinn á staðnum grunaður um nytjastuld á bifreiðinni og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild HVE til skoðunnar. Hann reyndist ekki slasaður og var vistaður í fangaklefa að skoðun lokinni.

Auglýsing

læk

Instagram