Vinahópurinn hljóp fyrir Minningarsjóð Lofts Gunnarssonar

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í dag og fyllti miðborgina af lífi, litum og jákvæðri orku. Meðal þeirra sem mættu í hlaupaskóna var samheldinn hópur vina og fjölskyldu sem ákvað að hlaupa 10 kílómetra til styrktar Minningarsjóði Lofts Gunnarssonar.

Sjóðurinn, sem stofnaður var árið 2012 í minningu Lofts sem lést langt fyrir aldur fram, hefur sett mark sitt á umræðuna um aðbúnað jaðarsettra í Reykjavík og stutt úrræði á borð við Konukot, gistiskýlin og Frú Ragnheiði. Frá upphafi hefur sjóðurinn ráðstafað yfir 20 milljónum króna í að bæta hag þeirra sem standa höllum fæti.

Auglýsing

Tóku lagið eftir maraþonið

Hlaupararnir sem tóku höndum saman í ár voru meðal annars æskuvinir og nánir aðstandendur Lofts: Brandur Gunnarsson bróðir hans, mágurinn Gunni Hilmarsson, ásamt Krumma Björgvinssyni, Pétri Ben, Frosta Jón Runólfssyni, Matthíasi Kristinssyni, Birni Árnasoni og Alberti Torfa Ólafssyni. Með í för var einnig Frosti Logason, ritstjóri Nútímans og einn eigenda Brotkasts, sem sagði í færslu á Facebook eftir hlaup:

„Tókum síðan lagið Kings of the Underpass sem var samið um Loft af meistara Pétri Ben. Þetta var hrikalega gaman og allt saman gert fyrir mikilvægan málstað en minningarsjóðurinn hyggst styrkja nýtt Konukot sem stendur til að opna á næstu vikum.“

Með færslunni birtust myndir sem Nútíminn fékk góðfúslegt leyfi til þess að birta. Þar sést hópurinn syngja lagið saman eftir að hafa lokið hlaupinu – augnablik sem undirstrikaði gleðina, samstöðuna og tilganginn með þátttökunni.

Áhorfendur hvöttu hlauparana áfram með klappi, flautum og hvatningarorðum meðfram götunum. Maraþonið er árlega stærsti fjáröflunardagur ársins fyrir góðgerðarfélög. Markmið vina Lofts Gunnarssonar var að safna 500 þúsund krónum og þú getur heitið á hópinn með því að smella hér.

Saga Reykjavíkurmaraþonsins

Reykjavíkurmaraþonið var fyrst haldið árið 1984 og árið eftir var hlaupið í fyrsta sinn í fulla maraþonvegalengd. Hlaupinu hefur vaxið fiskur um hrygg og í dag laðar það að sér þúsundir þátttakenda hvaðanæva úr heiminum. Með tengingu sinni við Menningarnótt hefur það þróast í einn stærsta viðburð ársins, þar sem íþrótt, góðgerð og menning sameinast í litríka borgarhátíð.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing