Yljar Breiðhyltingum með heimalöguðum aðventugraut

Ungur maður hefur yljað Breiðhyltingum síðustu sunnudaga með heimatilbúnum aðventugraut.

„Ég er semsagt búin að vera með aðventugraut hérna í Breiðholti og er að bjóða fólki að koma og fá sér graut í hverfinu sínu og að sama skapi erum við að reyna að fá fólk til að vera vart um það að Breiðholt er mjög góður staður til að búa á,“ segir Jóhann Helgi Sveinsson, sem bauð í dag upp á ávaxtagraut með rjóma. Sjálfur ólst hann upp í Hólahverfinu og er Breiðhyltingur í húð og hár.

„Við höfum aldrei verið að auglýsa þetta neitt. Ég mæti bara og stilli upp mínu og þeir koma sem koma og það er bara gaman,“ segir Jóhann Helgi.

En hann segir fólk tak mjög vel í þetta og uppátækið hefur vakið athygli. Hann leggur upp úr huggulegri stemningu á básnum en í dag var kveikt á þremur aðventukertum.

Næsta Sunnudag verður Jóhann með möndlugraut á torginu í Austurbergi í Breiðholti. „Það verður plötusnúður og mjög gaman og endilega allir að kíkja,“ segir Jóhann.

Hér fyrir neðan má sjá innslagið með Jóhanni í heild sinni.

Auglýsing

læk

Instagram