Það er ekki óalgengt að einstaklingar sem ganga gegn ríkjandi skoðunum samfélagsins séu kallaðir brjálæðingar, þar til sönnunargögnin reynast þeim í hag.
Í þessu myndbandi frá WatchMojo eru 10 slíkir einstaklingar teknir fyrir, fólk sem var fyrirlitið, hunsað eða jafnvel ofsótt, en hafði í raun rétt fyrir sér eftir allt saman.
Frá sykurskandal til sótthreinsunar
Listinn spannar allt frá vísindalegum uppgötvunum yfir í pólitísk mótmæli.
Meðal þeirra sem eru nefndir er næringarfræðingurinn John Yudkin sem var á undan samtíð sinni með að vara við skaðsemi sykurs, áratugum áður en það varð almennt viðurkennt en sykurframleiðendur nýttu völd sín og peninga til að kaupa „vísindagreinar“ til að rústa ferli hans.
Þá var Dr. John Snow meðal fyrstu sem tengdu kóleru við mengað drykkjarvatn, og Ignaz Semmelweis talinn snargeðveikur fyrir að stinga upp á handþvotti lækna.
Listin að standa einn gegn fjöldanum
Söngkonan Sinéad O’Connor er einnig á listanum, sem árið 1992 vakti hneyksli með gagnrýni á kaþólsku kirkjuna, en var síðar réttlætt þegar umfang misnotkunarmála kirkjunnar kom í ljós.
Ernest Hemingway var sakaður um ofsóknaræði þegar hann lýsti grun sínum um að eftirlit væri haft með honum, sem síðar reyndist rétt þegar gögn um njósnir FBI um hann komu fram.
Frægð, svívirðing og að lokum réttlæti
Margir þeirra sem nefndir eru fengu aldrei að upplifa réttlæti því of margir dóu áður en þeir voru opinberlega sýknaðir af fordómum og fáfræði samtímans.
Hversu oft höfum við hafnað sönnunum vegna þess að þær eru óþægilegar?