14 ára stúlka handtekin í Skotlandi fyrir hnífaburð – Segist hafa verið að verja sig og vinkonur sínar fyrir árásarmanni

Lögreglan í Dundee í Skotlandi handtók 14 ára stúlku á laugardagskvöldið eftir að tilkynnt var um að hún hefði verið með hníf á almannafæri.

Atvikið átti sér stað á St Ann Lane í Lochee-hverfinu rétt eftir klukkan 19:30.

Auglýsing

Fjölmargir lögreglubílar á vettvangi

Lögregla í Skotlandi staðfestir að stúlkan hafi verið kærð í tengslum við meint brot og málið nú komið til viðeigandi yfirvalda.

Í yfirlýsingu lögreglu sagði:
„Um klukkan 19:40 á laugardag barst okkur tilkynning um unglingsstúlku með hníf á St Ann Lane í Dundee. Lögreglumenn fóru strax á vettvang og 14 ára stúlka var kærð í málinu.“

Segist eingöngu hafa varið sig

Samkvæmt frásögnum á samfélagsmiðlum heldur stúlkan því fram að hún hafi aðeins dregið upp hnífinn til að verja sig og vinkonu sína gegn manni sem hún segir að hafi verið að taka upp myndband af þeim.

Í myndbandinu sjást stúlkurnar biðja manninn um að láta sig í friði og meðal annars heyrist systir hennar segja honum að láta systur sæína í friði, hún sé einungis 12 ára gömul.

Stúlkan segist hafa verið að verja sig en hafi ekki haft í hyggju að fremja neinn glæp.

Á netinu hafa margir tekið undir með stúlkunni og segja hana hafa verið handtekna fyrir að lifa af.

Einn notandi skrifaði: „Hún kaus að láta ekki nauðga sér, og var þess vegna handtekin af eigin lögreglu.“

Deilur í bresku samfélagi

Málið hefur kveikt mikla umræðu í Bretlandi um hvernig réttarkerfið bregst við þegar ungmenni verja sig í hættulegum aðstæðum.

Gagnrýnendur spyrja hvort yfirvöld séu að vernda ungar stúlkur eða skilja þær eftir varnarlausar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing