Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aukið eftirlit með eigendum skotvopna sem hluta af samfélagslöggæsluverkefni sínu.
Eigendur skotvopna geta átt von á heimsókn lögreglu þar sem farið er yfir hvort vörslur og geymsla séu í samræmi við lög og reglur.
Skýrar kröfur um geymslu og vörslu
Lögregla minnir á að skotvopn skulu ávallt geymd í viðurkenndum skotvopnaskáp.
Þá ber eigendum að geta framvísað þeim vopnum sem þeir eru skráðir fyrir, eða sýnt fram á lánsheimild séu vopnin ekki í þeirra vörslum.
Skotfæri skulu ekki geymd með skotvopnum heldur læst í sér skáp eða í læstu hólfi innan skotvopnaskáps.
Meðalhóf haft að leiðarljósi
Í tilkynningu lögreglu kemur fram að reynt sé að viðhafa meðalhóf og leggja áherslu á leiðbeiningar fremur en aðgerðir við minnstu frávik.
Þó séu ákveðin mörk og í sumum tilfellum verði ekki hjá því komist að grípa til aðgerða.
17 skotvopn haldlögð
Við eftirlit sem fram fór um helgina voru samtals 17 skotvopn og töluvert magn skotfæra haldlögð.
Í þeim tilvikum voru vörslur metnar óforsvaranlegar.
Viðkomandi leyfishafar verða kærðir fyrir brot á vopnalögum.
Lögregla hvetur eigendur skotvopna til að hafa vörslur á hreinu, allra vegna.