22 ára kona fær 2 milljónir dala í skaðabætur eftir að hafa verið ýtt út í tvöfalt brjóstnám þegar hún var ólögráða

22 ára kona í New York hefur fengið 2 milljónir dala í skaðabætur eftir að kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að læknar hefðu brotið gegn siðareglum þegar þeir samþykktu tvöfalt brjóstnám á henni þegar hún var aðeins 16 ára.

Konan, Fox Varian, gekkst undir aðgerðina árið 2019 eftir samþykki sálfræðings og skurðlæknis. Kviðdómur taldi báða bera ábyrgð á læknisfræðilegum mistökum.

Fyrsti sigur „detransitioner“ í dómsmáli

Auglýsing

Varian, lýsir sér í dag sem svokölluðum detransitioner, sem er fólk sem hefur undirgengist ferli til kynskiptingar en hafa hætt við ferlið á einum eða öðrum tímapunkti. Hún fékk 1,6 milljónir dala fyrir líkamlegar og andlegar þjáningar og 400 þúsund dali vegna lækniskostnaðar sem hún mun þurfa það sem eftir er ævinnar. Málið er hið fyrsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum þar sem slíkur stefnandi vinnur dómsmál eftir að hafa farið alla leið fyrir kviðdóm.

Ásakanir um þrýsting og ófullnægjandi mat

Kviðdómur taldi að læknarnir hefðu ekki fylgt nauðsynlegum varúðarreglum áður en þeir lögðu til varanlega skurðaðgerð á ólögráða einstaklingi. Samkvæmt málatilbúnaði lögmanna Varian var sálfræðingurinn talinn hafa þrýst á hana og mótað þá hugmynd að aðgerð væri nauðsynleg lausn á vanlíðan hennar.

Móðir segist hafa verið hrædd

Móðir Varian bar vitni um að hún hefði verið mótfallin aðgerðinni en samþykkt hana af ótta við að dóttir hennar gæti tekið eigið líf. Hún sagði að sér hefði fundist hún standa frammi fyrir ómögulegu vali.

Verjendur læknanna héldu því fram að Varian hefði sjálf komið fyrst með hugmyndina að brjóstnámi, notað karlkyns fornöfn og lifað sem karl í nokkur ár eftir aðgerðina. Þeir sögðu einnig að hún hefði verið sátt við niðurstöðuna um tíma áður en hún höfðaði mál árið 2023.

Ekki dæmt um siðferði aðgerða

Kviðdómur tók ekki afstöðu til siðferðis eða almennrar réttmætis kynleiðréttingaraðgerða á ólögráða fólki. Áherslan var eingöngu á hvort faglegum stöðlum hefði verið fylgt í þessu tilviki.

Málið kemur í kjölfar þess að stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hert reglur um kynbundnar læknisaðgerðir á börnum. Samkvæmt upplýsingum eru nú 28 sambærileg mál í mismunandi stigum dómsmeðferðar víðs vegar um Bandaríkin.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing