Nú þegar 25 ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum 11. september vara bæði Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, og Sir Ken McCallum, yfirmaður MI5, við því að ógnin sé langt frá því horfin. MI5 er breska innanríkisleyniþjónustan sem verndar landið gegn hryðjuverkum, njósnum og öðrum ógnum við þjóðaröryggi.
Burnham segir hryðjuverk enn vera mikla ógn á Bretlandseyjum, en McCallum gengur lengra og varar við að ekki sé ólíklegt að nú þegar sé verið að plana næsta stóra hrðyjuverk þar sem leyniþjónustur séu ekki að leita.
Alls létust 2.977 manns í árásum Al Kaída á Bandaríkin 11. september 2001, þar af 67 Bretar. Árásirnar breyttu öryggismálum og ráðstöfunum Vesturlanda til frambúðar og hrundu af stað umfangsmestu baráttu sögunnar gegn alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum.
„Drekarnir eru komnir aftur“
McCallum segir að Al Kaída sé nú aðeins svipur hjá sjón af því afli sem samtökin voru árið 2001. Það hafi þó ekki gerst af sjálfu sér heldur vegna gríðarlegs alþjóðlegs átaks gegn þeim, sem Bandaríkin leiddu.
Enn sé þó sífellt verið að leggja á ráðin um hryðjuverk sem ætlað er að myrða eins marga og hægt er. Hann vísar meðal annars til nýlegs dóms yfir íslamista sem reyndi að útvega sér sjálfvirk skotvopn til að ráðast á gyðinga í Manchester.
Ógnin sé jafnframt mun flóknari en hún var fyrir aldarfjórðungi. Hryðjuverkahópar starfi nú samhliða ríkjum sem beiti njósnum, netárásum, skemmdarverkum og glæpamönnum til að ráðast á innviði og grafa undan lýðræðisríkjum.
McCallum lýsir stöðunni með því að segja að „drekarnir eru komnir aftur en snákarnir eru enn til staðar.“
Drekarnir eru í þessari samlíkingu öflug ríki með mikla getu til árása en snákarnir hryðjuverkasamtök og einstaklingar sem geta gert árásir með litlum fyrirvara.
Næsta árás gæti komið úr óvæntri átt
McCallum varar sérstaklega við því að öryggisstofnanir undirbúi sig eingöngu undir endurtekningu fyrri árása. Næsta stóra hryðjuverk muni að öllum líkindum ekki líkjast því síðasta og geti þegar verið í undirbúningi þar sem enginn horfir.
Stór hluti mikilvægustu innviða Bretlands sé nú í höndum einkafyrirtækja. Afdrifaríkar ákvarðanir verði því ekki aðeins teknar í stjórnstöðvum ríkisstjórnarinnar heldur einnig inni í stjórnarherbergjum fyrirtækja.
Hann kallar eftir sameiginlegu átaki stjórnvalda, atvinnulífs, háskóla og almennings til að finna veikleika áður en ráðist verður á þá.
Bretland er nú á næsthæsta viðvörunarstigi þegar kemur að hryðjuverkum. Það þýðir að árás er talin mjög líkleg til að eiga sér stað á næstunni. Stigið var hækkað 30. apríl eftir hnífaárás á tvo gyðinga í London, en stjórnvöld tóku fram að ákvörðunin byggðist einnig á víðtækari ógn frá íslamistum.
„Við erum þið og þið eruð við“
Burnham minntist þess hvernig Bandaríkjamenn studdu íbúa Manchester eftir sjálfsmorðsárásina á Manchester Arena árið 2017, þar sem 22 létust.
Nokkur barna þeirra sem féllu 11. september skrifuðu fjölskyldum fórnarlambanna í Manchester og sendu þeim skilaboðin:
„Við erum þið og þið eruð við. Við erum eitt.“
Burnham segir Bretland og Bandaríkin áfram standa saman gegn þeim sem vilji sundra samfélögum með ótta og hatri.
Tony Blair, sem var forsætisráðherra Bretlands þegar árásirnar voru gerðar, segir 11. september hafa breytt heiminum og að áhrif þess dags móti hann enn, aldarfjórðungi síðar.
McCallum segir minningu fórnarlambanna ekki nægja eina og sér. Við skuldum þeim raunverulegan viðbúnað og hugrekki til að laga varnirnar að þeim ógnum sem eru til staðar í dag.