Börnum sem var haldið á heimili sínu á Spáni var sleppt 28. apríl þegar lögreglan frelsaði þau. Börnin, tvíburar sem eru 8 ára og bróðir þeirra sem er 10 ára, höfðu ekki haft samskipti við umheiminn síðan 2021.
Börnin fundust í óhreinu og óheilnæmu umhverfi, með margar andlitsgrímur, í bleyjum og sofandi í rimlarúmum sem auðvitað er ekki viðeigandi miðað við aldur. Foreldrar barnanna, þýskur maður og þýsk/bandarísk kona fluttu frá Þýskalandi til Spánar og höfðu haldið börnunum í einangrun vegna ótta við Covid-19. Þau höfðu ekki sótt skóla, fengið viðeigandi næringu eða haft aðgang að afþreyingu. Heimilið var fullt af rusli, lyfjum og dýraúrgangi.
Lögreglan komst að málinu eftir að nágranni tilkynnti um grunsamlegar aðstæður og heyrði barnaraddir úr húsinu. Eftir rannsókn kom í ljós að börnin höfðu verið haldin í einangrun frá desember 2021. Þau voru flutt á sjúkrahús til læknisrannsókna og síðan sett í forræði yfirvalda.
Foreldrarnir voru handteknir og ákærðir fyrir barnamisnotkun, andlegt ofbeldi og vanrækslu. Þau eru nú í gæsluvarðhaldi án möguleika á lausn gegn tryggingu.