32 ára maður af sómalskum uppruna hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir að hann játaði að hafa kastað tveggja ára dreng fram af svölum á sjöundu hæð í íbúðahverfi í Høje Gladsaxe, norðan Kaupmannahafnar.
Barnið lést skömmu síðar af völdum áverkanna.
Lögregla var með mikinn viðbúnað á vettvangi og var maðurinn handtekinn á staðnum.
Áður dæmdur fyrir manndráp á fjölskyldumeðlim
Samkvæmt umfjöllun DR hefur maðurinn áður verið dæmdur fyrir manndráp á nánum fjölskyldumeðlim, sem samkvæmt heimildur blaðsins var móðir mannsins.
Í því máli var hann dæmdur til svokallaðs vistunardóms, þar sem hann var talinn alvarlega geðveikur á þeim tíma.
Vistunardómur felur í sér að viðkomandi afplánar refsingu á geðsjúkrahúsi þar til dómstólar meta hann hæfan til útskriftar.
Í þessu nýja máli kemur fram að maðurinn og fórnarlambið séu náskyld.
Gæsluvarðhald utan geðdeildar
Ástæður morðsins liggja ekki fyrir en dómari málsins hefur sett bann á fjölmiðlaumfjöllun úr réttarsalnum að svo stöddu.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hann neitaði að veita samþykki fyrir vistun á lokaðri geðdeild.
Dómari hefur jafnframt ákveðið að hann skuli sæta geðrannsókn, sem hann samþykkti síðar.
Nafn mannsins hefur ekki verið gefið upp.