420 handteknir vegna skógarelda í Frakklandi – 9 af hverjum 10 skógareldum eru af mannavöldum

Frönsk yfirvöld hafa handtekið 420 manns vegna gruns um að hafa valdið skógareldum í landinu í sumar, annað hvort af ásetningi eða fyrir slysni. Þar af eru 166 undir lögaldri.

Skógareldar hafa valdið meiri skemmdum í Frakklandi í ár en nokkru sinni frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar og hafa meira en 300 þúsund ekrur lands orðið eldinum að bráð í sumar.

Auglýsing

Talið er að um níu af hverjum tíu skógareldum í Frakklandi séu af mannavöldum.

Grunaður um að hafa kveikt tíu elda

Meðal þeirra sem hafa verið handteknir er 23 ára maður sem sakaður er um að hafa kveikt tíu elda á aðeins fimm dögum í Var héraði í suðausturhluta landsins í síðasta mánuði.

Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi og 150 þúsund evru sekt.

Þá hefur maður þegar verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa kveikt þrjá elda í Raon-L’Étape skóginum í Vosges héraði.

Franska dagblaðið L’Est Républicain greindi frá því að aðeins nokkrir fermetrar gróðurs hefðu brunnið í þeim tilvikum.

Fangelsi fyrir sígarettustubba

Harðar aðgerðir yfirvalda hafa þó einnig sætt gagnrýni.

Samkvæmt umfjöllun BBC hafa meðal annars heimilislaus maður og einstaklingur með alvarlega einhverfu fengið fangelsisdóma fyrir að kasta frá sér sígarettustubbum.

Lögmaðurinn Muriel Gestas, sem hefur komið að nokkrum málum vegna meintra íkveikna, segir fjölda handtaka hafa komið sér á óvart.

„Ég var undrandi á fjölda handtakanna. Þetta virðist óhóflegt,“ segir hún og telur ólíklegt að öll málin leiði til sakfellingar.

Franska dagblaðið Le Monde hefur einnig velt upp spurningum um hvort lögregla hafi haft nægan tíma til að rannsaka öll málin ítarlega.

„Það þarf aðeins örlítinn neista“

Saksóknari í Bordeaux segir hins vegar að harðar aðgerðir séu réttlætanlegar við þær aðstæður sem nú ríkja.

Mikil þurrkatíð hefur gert skóga landsins sérstaklega eldfima og getur örlítill neisti frá sígarettu, grilli, framkvæmdum eða rafbúnaði nægt til að koma af stað stórum eldi.

Eric Dufayet, sem rannsakar upptök skógarelda, segir að í núverandi þurrkum geti eldur breiðst út mjög hratt.

Macron segir ástandið fordæmalaust

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur lýst skógareldunum sem algjörlega fordæmalausum.

Hann segir að þegar eldarnir hafi verið slökktir þurfi Frakkar að endurhugsa hvernig skógar í landinu séu ræktaðir og undirbúa þá betur fyrir breytt loftslag.

Hundruð heimila hafa orðið fyrir tjóni vegna eldanna auk þess sem þeir hafa haft veruleg áhrif á ferðaþjónustu, fyrirtæki, náttúru og loftgæði.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing