5.000 bandarískir sjóliðar stíga á land eftir 286 daga á sjó – Tælenski vændisiðnaðurinn býr sig undir mikla vertíð

Ef marka má viðbúnaðinn í Pattaya er tælenski vændisiðnaðurinn nú að búa sig undir mikla vertíð.

Bandaríska flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln kom til hafnar í Laem Chabang í morgun með um 5.000 sjóliða og landgönguliða um borð. Áhöfnin hefur verið 286 daga samfleytt á sjó og má því ætla að einhverjir séu orðnir tilbúnir að sjá annað en stálþil, orrustuþotur og vinnufélagana.

Auglýsing

Fimm daga stoppið er ætlað til hvíldar eftir langan túr skipsins í hernaðaraðgerðum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum. Um 40 rútur verða notaðar til að flytja skipverjana milli hafnarinnar og Pattaya, sem hefur beinlínis orðspor fyrir að vera rólegt og fjölskylduvænt.

Sjá fram á mikinn gróða

Borgarstjórinn í Pattaya áætlar að hver skipverji geti eytt á bilinu 1.000 til 3.000 baht á dag í landi. Ef allir 5.000 fari til borgarinnar og eyði innan þess bils gæti innspýtingin numið 5 til 15 milljónum bahta, sem eru um 18 til 55 milljónir íslenskra króna.

Hótel, veitingastaðir, barir, verslanir og samgöngufyrirtæki vonast öll eftir sinni sneið af kökunni. Forseti samtaka næturklúbba í Pattaya segir árið hafa verið það rólegasta sem hún hafi séð í meira en tvo áratugi og því sé koma flotans mikið fagnaðarefni.

Lögreglan tók til fyrir gestakomuna

Vændi er bannað samkvæmt tælenskum lögum, þótt iðnaðurinn starfi fyrir opnum tjöldum í ferðamannaborgum á borð við Pattaya.

Lögreglan viðurkennir þó að erfitt sé að hafa stjórn á þessu málunum þar sem fólk geti boðið þjónustu sína á almannafæri án þess að yfirvöld verði þess vör. Sú ráðgáta virðist enn óleyst, þrátt fyrir að Pattaya hafi verið heimsþekkt fyrir vændisstarfsemi í marga áratugi.

Gamall viðskiptavinahópur snýr aftur

Tengsl Pattaya við bandaríska herinn ná aftur til Víetnamstríðsins. Borgin var áður lítið sjávarþorp en óx hratt þegar bandarískir hermenn tóku að sækja þangað í hvíld og „afþreyingu“.

Barir, næturklúbbar og vændisiðnaður fylgdu í kjölfarið og urðu síðar stór hluti af alþjóðlegri ímynd borgarinnar. Það má því segja að gamall viðskiptavinahópur sé nú að snúa aftur.

Alvarlegri hlið á vertíðinni

En að öllu gamni slepptu þá hafa sérfræðingar varað við hættu á kynferðislegri misnotkun og fjölgun kynsjúkdóma þegar svo stór hópur kemur til borgarinnar á skömmum tíma.

Einnig hafa borist fréttir af miklu álagi, versnandi aðbúnaði og sjálfsvígstilraunum um borð í flugmóðurskipinu á meðan á hinni óvenjulöngu útivist stóð.

Skipverjarnir fara í land í smærri hópum og verða undir sérstöku eftirliti. Þeim hefur meðal annars verið bannað að fara á þotuskíði, stunda teygjustökk eða taka þátt í bardagaíþróttum, en það er algeng skemmtun að ferðamönnum sé boðið að berjast við atvinnubardagamenn, sem eru oft muay thai kappar á heimsmælikvarða.

Hvort lögreglunni tekst á sama tíma að framfylgja vændisbanninu þegar fimm þúsund hermenn sem eru búnir að vera 286 daga á sjó mun koma í ljós á næstu dögum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing