Á meðan Jordan naut lífsins í Grikklandi fékk hann vondar fréttir að heiman

NBA-goðsögnin Michael Jordan naut lífsins á snekkju við Grikklandsstrendur ásamt eiginkonu sinni Yvette Prieto þegar hann fékk slæmar fréttir að heiman: 23XI Racing, kappaksturslið sem hann á í félagi við Denny Hamlin, tapaði mikilvægu dómsmáli gegn NASCAR. Tap málsins gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð liðsins.

Auglýsing

Michael Jordan ásamt eiginkonu sinni Yvette Prieto.

Liðið þarf að keppa án tryggðra sæta

Dómari við alríkisdómstól í Bandaríkjunum hafnaði beiðni 23XI Racing og Front Row Motorsports um að halda áfram að keppa sem svokölluð „charter-lið“ á meðan lögsókn þeirra gegn NASCAR stendur yfir. Þetta þýðir að bílar liðanna verða skráðir sem „open entries“ næstu vikur – sem í stuttu máli þýðir að þau hafa ekki tryggðan keppnisrétt og fá minni hlutdeild í fjármunum og stigum.

Jordan slakur á meðan málið harðnar

Á sama tíma var Jordan séður á bryggju í Mykonos, í stuttbuxum með hermynstri, Notorious B.I.G. bol og sólgleraugu, með vindil í munninum. Hann virtist rólegur þegar hann steig í land úr hraðbáti, en óvíst er hvort hann hafi vitað af úrskurðinum á þeim tíma.

Tímabundin von – en framtíðin óviss

Dómarinn útilokaði ekki að endurskoða ákvörðun sína ef aðstæður breytast á næstu tveimur vikum. Þó gæti liðið tapað bæði tekjum og möguleikum á úrslitakeppni meðan á biðinni stendur. Ökumenn eins og Bubba Wallace og Tyler Reddick verða nú að keppa án þess að vera öruggir með sæti í hverri keppni – ef fleiri en 40 bílar mæta, gæti einhver lent út undan.

Michael Jordan á lið í NASCAR sem hefur verið að standa sig vel.

Lögfræðin, peningarnir – og baráttan gegn NASCAR

Lögmaður liðanna segir málið snúast um einokun og yfirgang af hálfu NASCAR: „Við ætlum ekki að láta ýta okkur út úr sportinu sem við elskum,“ sagði hann. Þrátt fyrir vonbrigðin eru 23XI og FRM staðráðin í að halda áfram baráttunni. Málið fer formlega fyrir dóm 1. desember, en tíminn vinnur gegn þeim – 16 keppnir eru eftir á tímabilinu.

Michael Jordan og 23XI Racing – hvernig þetta allt byrjaði

Michael Jordan hefur lengi verið áhugamaður um hraða og kappakstur, en árið 2020 gerði hann það sem fáir bjuggust við – hann stofnaði sitt eigið NASCAR-lið. Hann gekk til liðs við Denny Hamlin, margfaldan sigurvegara í NASCAR, og saman stofnuðu þeir 23XI Racing (borið fram „twenty-three eleven“).

Nafíð nísar í annars vega fræga treyjunúmer Jordans í NBA (23) og hins vegar bíl Hamlin (11). Markmiðið var að koma með ferska sýn og fjölbreytni inn í íþrótt sem lengi hefur verið talin hvít, suðurríkjamiðuð og lokuð fyrir nyjungum.

Liðið vakti strax athygli með þvíað ráða Bubba Wallace, eina svarta ökumanninn í efstu deild NASCAR. Áhersla var lögð á jafnrétti, nýsköpun og samkeppnishæfni. Þeir fengu strax „charter“ eða „tryggt sæti í keppnum“, og náðu fljótt árangri – Wallace vann sinn fyrsta NASCAR-sigur með liðinu árið 2021.

Síðan þá hefur liðið vaxið hratt og bætt við sig fleiri ökumönnum, þar á meðal Tyler Reddick og Riley Herst. Þeir hafa verið í baráttunni við bestu liðin í sportinu, bæði innan brautar sem utan. En þegar 23XI og samstarfslið þeirr Front Row Motorsports neituðu að framlengja „charter-samning“ við NASCAR árið 2023,  hófat málaferlið sem nú hefur dregið Jordan og lið hans inn í dómssal.

Markmiðið með málinu er að berjast gegn því sem þeir telja einokun NASCAR og að verja rétt nýrra liða til að eiga framtíð í sportinu. Nú stendur Jordan og hans lið á krossgötum og í raun sportið í heild sinni. Það verður áhugavert að sjá hvað kemur út úr þessu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing