Adolf Hitler er svo sannarlega ekki hættur í stjórnmálum

Adolf Hitler Uunona, sveitarstjórnarmaður í norðurhluta Namibíu, hefur enn á ný tryggt sér sæti í heimahéraði sínu og sigrað í sveitarstjórnarkosningum í Ompundja, fimmta skipti í röð.

Uunona hefur setið sem fulltrúi í Oshana héraði frá árinu 2004 fyrir stjórnmálaflokkinn SWAPO.

Auglýsing

Þótt kjörstjórn Namibíu hafi ekki birt endanlegar tölur er ljóst samkvæmt fjölmörgum heimildum að Uunona bar sigur úr býtum með afgerandi mun.

Hann naut einnig mikils fylgis í kosningunum árið 2020, þegar hann hlaut um 85 prósent atkvæða.

Segir nafnið ekki endurspegla skoðanir sínar

Uunona, sem er 59 ára, hefur lengi verið vinsæll í um fimm þúsund manna kjördæmi sínu, þar sem íbúar hafa hrósað honum fyrir baráttu gegn aðskilnaðarstefnu.

Hann hefur þó oft þurft að svara fyrir nafnið sitt, sem er nánast eins og nafnið á fyrrum þjóðhöfðingja.

Í viðtali við þýska blaðið Bild árið 2020 sagði hann að nafngiftin hefði verið ákvörðun föður síns, sem hafi líklega ekki áttað sig á merkingunni.

„Sem barn fannst mér þetta vera fullkomlega eðlilegt nafn,“ sagði hann og bætti við að hann ætti ekkert sameiginlegt með nasisma eða heimsvaldastefnu.

„Ég vil ekkert samneyti með þessum hugmyndum,“ útskýrði hann og sagðist aðeins nota nafnið Adolf Uunona í daglegu lífi.

Hann hyggst þó ekki breyta nafninu og telur sig kominn of langt til þess.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing