„Af hverju geta leigubílstjórar byrjað strax aftur að keyra eftir alvarleg brot?“

Í umræðu sem vakið hefur athygli spyr Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein Pæling, hvers vegna leigubílstjórar sem brjóta alvarlega af sér í starfi virðist eiga greiða leið aftur í akstur án teljandi tafa.

Viðmælandi Þórarins er Ómar Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjón á landamærunum, og tilefnið er atvik þar sem ökumaður sést á myndbandi loka skottloki í höfuð ferðamanns, en er skömmu síðar aftur kominn að keyra.

Atvik á ferðamannasvæðum vekur reiði

Auglýsing

Þórarinn bendir á að atvikið hafi átt sér stað á svæði sem mikill fjöldi ferðamanna heimsækir og segir almenning eiga erfitt með að skilja hvernig ökumaður sem sjáist beita ofbeldi geti verið kominn aftur til starfa.

Hver ber ábyrgð?

Í samtalinu spyr Þórarinn hvort kerfið sé að klikka, og þá hvar.

Hann nefnir sérstaklega Samgöngustofu og spyr hvort þar sé skýringin að finna.

Ómar svarar því til að lögreglan sinni sínum verkefnum, en þegar afskiptum sé lokið sé málið tilkynnt til Samgöngustofu sem taki það til skoðunar.

Hann segir að hið sama gildi þegar einstaklingum sé vísað frá ákveðnum svæðum vegna brota á reglum.

Aðgangsstýring í höndum Isavia

Ómar útskýrir jafnframt að það sé Isavia sem stýri því hverjir fá að starfa eða vera með aðgang að ákveðnum svæðum sem þeir stjórna, þar á meðal flugvallarsvæðinu.

Isavia reyni að hafa eftirlit, en þrátt fyrir það séu dæmi um að einstaklingar hafi reynt að komast fram hjá reglum, meðal annars með því að skipta um skráningarnúmer ökutækja.

„Tökum þetta ekki léttvæglega“

Að sögn Ómars fer lögreglan reglulega í útköll og sinnir eftirliti eftir bestu getu.

Hann ítrekar að málin séu ekki tekin léttvæglega, þó svigrúm til aðgerða sé takmarkað þegar komið er út fyrir beint verksvið lögreglu.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing