Nútíminn hefur hafið samstarf við Aðalheiði þar sem hún birtir myndbönd um samskipti kynjanna, sambönd og lífið almennt. Þetta er þriðja myndbandið í röðinni.
Í myndbandinu veltir hún því upp hvers vegna fólk leggur mikla orku í upphaf sambands, en slakar svo á þegar líður á. Hún bendir á að oft gleymist að halda áfram að sýna sömu umhyggju og áhuga og í byrjun, þrátt fyrir að það sé einmitt það sem heldur tengslunum sterkum.
Starfar við heilsu og lífsgæði
Aðalheiður er eigandi Tilveran Barre og yoga stúdíó á Garðatorgi 3. Hún hefur lagt áherslu á að styðja fólk í að bæta lífsgæði sín með hreyfingu, heilsu og lífsráðgjöf.
Fleiri myndbönd frá Aðalheiði verða birt reglulega á Nútímanum þar sem hún mun áfram taka fyrir málefni sem tengjast daglegu lífi og samskiptum fólks.
View this post on Instagram