AfD (Alternative für Deutschland) er nú stærsti flokkur Þýskalands og heldur áfram að bæta við sig fylgi samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum og hefur aldrei mælst með jafn mikið fylgi.
AfD mælist nú með 28 prósenta fylgi en CDU/CSU, flokkasamband Friedrich Merz kanslara, aðeins 21 prósent. Munurinn er því sjö prósentustig og hefur aldrei áður verið jafn mikill.
Fylgið aukist verulega frá kosningunum
Þróunin frá þýsku þingkosningunum í febrúar 2025 er sérstaklega áberandi. Þá fékk CDU/CSU 28,5 prósent atkvæða og var stærsta stjórnmálaaflið í landinu en AfD fékk 20,8 prósent.
Nú, tæpu einu og hálfu ári síðar, hafa hlutföllin snúist við. AfD mælist með 28 prósent en CDU/CSU með 21 prósent.
SPD mælist á sama tíma með 12 prósent, Græningjar með 15 prósent, Vinstriflokkurinn með 11 prósent og FDP með fjögur prósent í DeutschlandTrend.
Vill gjörbreyta Evrópusambandinu
AfD hefur tekið harða afstöðu gegn núverandi fyrirkomulagi Evrópusambandsins og vill að því verði skipt út fyrir mun lausara samstarf fullvalda þjóðríkja.
Í kosningastefnu flokksins frá 2025 segir að ESB hafi þróast í miðstýrt kerfi sem grafi undan lýðræðislegum meginreglum og takmarki fullveldi þjóðríkjanna. AfD vill í staðinn stofna nýtt evrópskt efnahags- og hagsmunabandalag sjálfstæðra ríkja, þar sem meðal annars yrði áfram sameiginlegur markaður.
Alice Weidel, annar tveggja formanna AfD, hefur gengið lengra og sagt að ef ekki reynist mögulegt að endurskipuleggja Evrópusambandið eigi Þjóðverjar að fá að greiða atkvæði um svokallað „Dexit“, það er úrsögn Þýskalands úr sambandinu, með sambærilegum hætti og Bretar gerðu í Brexit.
AfD vill einnig hætta með evruna og færa mun meira vald frá stofnunum Evrópusambandsins aftur til einstakra þjóðríkja. Í Evrópustefnu flokksins er núverandi ESB lýst sem kerfi sem ekki sé lengur hægt að bjarga.
Mikil óánægja með ríkisstjórnina
Vaxandi fylgi AfD kemur ekki síst í kjölfar mikillar óánægju með ríkisstjórn Merz. Í DeutschlandTrend sögðust aðeins 13 prósent aðspurðra ánægð með störf ríkisstjórnarinnar en 85 prósent voru óánægð. Þá sögðust 55 prósent vilja grundvallarbreytingar á stefnu landsins.
Þrátt fyrir stöðu AfD í könnunum eru næstu reglulegu þingskosningar ekki fyrirhugaðar fyrr en árið 2029. Næstu stóru prófraunir flokksins verða hins vegar sveitastjórnarkosningar, þar sem AfD hefur sérstaklega sterka stöðu í austurhluta Þýskalands.