Afgani sem nauðgaði 14 ára stúlku verður ekki framseldur – Franski fangaklefinn gæti verið „of þröngur“

Abdul Ahmadzai, 36 ára karlmaður frá Afganistan sem var dæmdur fyrir nauðgun á 14 ára stúlku í Frakklandi en náði að flýja yfir til Englands þar sem hann var að lokum handtekinn, gæti komist hjá framsali til Frakklands með þeim rökum að fangaklefinn sem hann myndi hugsanlega þurfa að afplána dóm sinn í þar, gæti verið „of lítill“ og þar með brotið gegn mannréttindum hans.

Franska ríkið gaf út alþjóðlega handtökuskipun á hendur Ahmadzai fyrir nauðgun á barni og hann var í kjölfarið handtekinn í Bretlandi samkvæmt Extradition Act 2003.

Auglýsing

Hann hafði þá verið dæmdur fyrir brotið þó hann væri fjarverandi og hlaut fimm ára fangelsisdóm.

Áhyggjur vegna stærðar klefa og rafmagnsvandamála

Á útgáfudegi handtökuskipunar hófst málsmeðferð fyrir Westminster dómstólnum í Bretlandi.

Þar lagði verjandi Ahmadzai, Stefan Hyman, áherslu á að mögulegt væri að klefi í Frakklandi væri minni en þrír fermetrar að stærð sem gæti talist ómannúðleg meðferð samkvæmt 3. grein Mannréttindasáttmála Evrópu.

Hyman hvatti bresku ákæruvaldið til að óska eftir upplýsingum frá frönskum yfirvöldum um það hvort Ahmadzai myndi fá sinn eigin bedda og nægt rými.

Hann benti jafnframt á að aðstæður í fangelsum í París væru mjög misjafnar og að ekki væri vitað fyrirfram hvar Ahmadzai myndi afplána dóm sinn.

Engin raunveruleg hætta að mati ríkisins

Lucia Brieskova, fulltrúi breska ríkisins í málinu, sagði fyrir dómi að 3. grein Mannréttindasáttmálans ætti ekki við í þessu máli við og að hennar mati væri engin raunveruleg hætta á að Ahmadzai lendi í aðstæðum sem brytu gegn sáttmálanum.

Dómari í málinu, Joanna Matson, ákvað að fresta ákvörðun um framsal Ahmadzai til 10. október.

Fram að þeim tíma verður hann áfram vistaður í gæsluvarðhaldi hjá bresku lögreglunni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing