Peter Mandelson lávarður hefur sagt sig úr Verkamannaflokknum í Bretlandi eftir að ný skjöl tengd Jeffrey Epstein voru gerð opinber. Í skjölunum kemur fram að Mandelson hafi fengið greiddar alls 75 þúsund dollarar frá Epstein á árunum 2003 og 2004.
Mandelson segir ákvörðunina tekna til að forðast frekari vandræði fyrir flokkinn. Hann hyggst sitja áfram í Lávarðadeildinni, en nú sem óháður þingmaður.
Segist iðrast og krefst rannsóknar
Í bréfi til framkvæmdastjóra Verkamannaflokksins segir Mandelson að hann sjái eftir tengslum sínum við Epstein og að ásakanir um fjárgreiðslur þurfi að rannsaka nánar. Hann segir sig hvorki hafa gögn um né minnist þess að hafa fengið slíkar greiðslur og telur fullyrðingarnar rangar.
Skjöl bandaríska dómsmálaráðuneytisins benda þó til þess að þrjár greiðslur, hver upp á 25 þúsund dollara, hafi verið sendar til hans. Þá er einnig fullyrt í öðrum gögnum að eiginmaður hans hafi fengið greidd 10 þúsund pund.
Dregur áreiðanleika gagnanna í efa
Mandelson hefur opinberlega efast um áreiðanleika skjalanna og bent á villur í framsetningu þeirra. Hann hefur kallað eftir því að bankinn sem gögni koma frá staðfesti að þau séu ósvikin. Þar til það liggi fyrir haldi hann því fram að fullyrðingarnar séu rangar.
Forsætisráðherrann Keir Starmer sagði að hann hefði aldrei skipað Mandelson í embætti ef hann hefði haft þær upplýsingar sem nú liggja fyrir. Mandelson var leystur frá starfi sínu sem sendiherra Bretlands í Bandaríkjunum í haust eftir að samband hans við Epstein varð opinbert, en ekki var vitað um umfang þess fyrr en nú. Nú hefur hann einnig sagt skilið við flokkinn.
Bandarískir þingmenn hafa einnig kallað eftir því að Mandelson beri vitni fyrir þingnefnd í Washington um tengsl sín við Epstein. Samkvæmt heimildum telja þeir að hann geti haft mikilvægar upplýsingar um aðra sem tengdust málinu.
Þrátt fyrir að nafn hans komi fram í skjölunum er tekið fram að það eitt og sér þýði ekki að hann hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi.