Flugfélagið easyJet býður upp á afar hagstæð fargjöld frá Akureyri í aðdraganda jóla og yfir vetrarmánuðina.
Samkvæmt verðkönnun Akureyri.net er hægt að komast til bæði London og Manchester fyrir aðeins nokkur þúsund krónur í beinu flugi, og þaðan áfram til fjölda áfangastaða.
Á Þorláksmessu má til dæmis fá flug til London á 3.300 krónur, eða um 20 pund.
Sama dag eru miðar til Manchester í boði á 5.200 krónur, sem samsvarar 31 pundi.
Ódýrustu sætin í janúar og febrúar
Þegar vetraráætlun easyJet fór í sölu í vor greindi Akureyri.net frá því að allra ódýrustu flugmiðarnir væru þá í boði í janúar.
Mögulegt var að finna miða á aðeins 12 pund, eða um 2.000 krónur, á nokkrum dagsetningum til bæði London og Manchester.
Enn eru mjög ódýr tilboð í boði ef rýnt er í verðin í dag.
Flug til Manchester í janúar og febrúar fæst niður í 17 pund á nokkrum dagsetningum.
Ódýrustu miðana til London Gatwick eru einnig að finna þessa tvo mánuði, meðal annars 24. janúar og 7. febrúar, þegar hægt er að kaupa miða á 16 pund, eða um 2.677 krónur.