Ákvarðanir í stjórnartíð Bidens gerðar ógildar

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynni á samfélagsmiðli sínum Truth Social að allar ákvarðanir sem Joe Biden skrifaði undir í forsetatíð sinni með vélrænum undirskrift (e. autopen) séu ógildar.

Trump segir að ekki sé heimilt að notast við slíka undirritin ef forseti Bandaríkjanna hefur ekki sérstaklega samþykkt ákvörðunina. Sakar hann öfgafullt vinstrafólk sem voru í kringum Biden um að hafa stolið forsetatíð Bidens og skrifað ólöglega undir í nafni Bidens.

Auglýsing

Fyrsti forseti Bandaríkjanna til að skrifa undir skjöl var Georg W. Bush en á árinu 2005 sagði Bandaríska dómsmálaráðuneytið þá að slíkt væri löglegt. Þá hefur Trump einnig skrifað undir skjöl með vélrænum penna en segir að þau skjöl hafi verið mjög léttvægleg og hann skrifi persónulega undir öll mikilvæg skjöl.

Það sem gerir þetta mál svo sérstakt að það er vel skrásett að Biden var kominn með vitræna hnignun í forsetatíð sinni. Fjölmiðlar fengu mjög takmarkaðan aðgang að honum og í þau fáu skipti sem hann sást í opinberum erindagjörðum að þá var framkoma hans ekki traustvekjandi. Meginstraumsfjölmiðlar fjölluðu nánast ekkert um andlegt atgervi Bidens á meðan að hann var forseti en eru nú farnir að fjalla aðeins um það. Það er í raun sérstakt rannsóknarefni hversu lítinn áhuga fjölmiðlar sýndu heilsufari Bidens á sínum tíma.

Trump fullyrðir að um 92% af ákvörðunum í stjórnartíð Bidens hafi verið skrifað undir með vélrænum penna. Þar á meðal voru um 50 fyrirfram náðunum á stjórnmálamönnum og sakaruppgjör á um 4.000 glæpamönnum ásamt fjölda forsetatilskipana. Eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings hefur skrifað skýrslu um notkun Bidens á vélrænum penna og er hægt að nálgast hana hér.

Mikil lagaleg óvissa er um ákvörðun Trumps og líklega mun reyna á ákvörðunina fyrir dómsstólum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing