Allar 18 velturnar frá torfærunni á Blönduósi í einu myndbandi – Sturluð tilþrif

Jakob C hefur sett saman myndband með öllum 18 veltunum úr torfærukeppninni á Blönduósi um helgina, þar sem ökumenn og sérsmíðaðir torfærubílar þeirra fengu heldur betur að finna fyrir því.

Myndbandið var birt á YouTube rás Jakobs, JAKOB C, á þriðjudag og hefur þegar fengið yfir 24 þúsund áhorf.

Auglýsing

Þar má sjá allar 18 velturnar úr keppninni á Blönduósi, þar sem keppendur tókust á við brattar brekkur og krefjandi brautir með tilheyrandi tilþrifum.

Jöfn í baráttunni um veltukónginn

Sérstök barátta stendur jafnframt yfir um titilinn „Rollover King“, eða veltukóng tímabilsins.

Thelma, sem ekur bílnum Túttan, og Bjarnþór á Olsen Olsen eru jöfn í efsta sæti með sjö veltur hvort það sem af er keppnistímabilinu.

Það verður því fróðlegt að sjá hvort það verður veltukóngur eða drottning þegar tímabilinu lýkur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing