Allir fimm lausir eftir yfirheyrslur vegna vopnamáls á Akureyri

Fimm einstaklingum sem handteknir voru í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri síðdegis í gær hefur öllum verið sleppt úr haldi. Engin krafa var gerð um gæsluvarðhald yfir þeim.

Lögreglu barst tilkynning um mann sem hefði miðað byssu að öðrum manni. Í kjölfarið voru tveir bílar stöðvaðir á sitt hvorum staðnum í bænum og fimm einstaklingar handteknir. Sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðunum og var Þingvallastræti lokað fyrir umferð um tíma.

Auglýsing

Hinir handteknu voru færðir á lögreglustöð og yfirheyrðir. Þeim síðustu var sleppt á ellefta tímanum í gærkvöldi.

Sjónarvottur í skotvopnamáli segir alla fimm handteknu hafa verið af erlendum uppruna

Lögregla staðfestir ekki að um leikfangabyssur hafi verið að ræða

Vísir greindi frá því í gærkvöldi, með vísan til heimilda, að vopnin sem fundust hefðu í raun verið leikfangabyssur sem keyptar voru í verslun á Glerártorgi fyrr um daginn. Þær hafi verið með rauðmálað hlaup. Vísir hafði þetta eftir aðila sem sagðist gæta hagsmuna eins hinna handteknu.

Varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra vildi hins vegar ekki staðfesta þær upplýsingar í samtali við RÚV í nótt. Hann sagði málið enn vera til rannsóknar og að lögregla gæti ekki tjáð sig nánar um vopnin að svo stöddu.

Lögregla hefur heldur ekki veitt upplýsingar um aldur hinna handteknu.

Samkvæmt heimildum Vísis voru þeir á rúntinum um bæinn og höfðu verið að fíflast með leikfangabyssurnar. Þeir geri sér grein fyrir alvarleika málsins og vilji biðja þá vegfarendur sem urðu hræddir afsökunar.

UPPFÆRT: Lögregla staðfestir að um nákvæmar eftirlíkingar var að ræða

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur nú staðfest að munirnir sem urðu tilefni umfangsmikillar lögregluaðgerðar á Akureyri í gær hafi ekki verið raunveruleg skotvopn.

Í tilkynningu lögreglu kemur fram að munirnir hafi reynst vera nákvæmar eftirlíkingar af skotvopnum. Þar með hefur lögregla staðfest þær upplýsingar sem Vísir birti í gærkvöldi um að hinir handteknu hefðu verið með leikfangabyssur en ekki virk skotvopn.

Fimmmenningarnir fái væntanlega sekt fyrir brot á vopnalögum en Börkur Árnason, varðstjóri Lögreglunnar á Norðurlandi eystra, segist í samtali við Vísi ekki vita hvort málið fari fyrir dóm í framhaldinu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing