Allt brjálað í Bretlandi eftir að stjórnvöld börðust fyrir að fá Egypskan aðgerðasinna til landsins – Hefur ítrekað lýst yfir hatri sínu á hvítu fólki

Mikil pólitísk og samfélagsleg umræða hefur skapast í Bretlandi eftir að egypski aðgerðasinninn Alaa Abd el-Fattah kom til landsins á annan í jólum, í kjölfar þess að egypsk stjórnvöld afléttu ferðabanni sem gilt hafði um hann um árabil.

Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, fagnaði komu Abd el-Fattah opinberlega á samfélagsmiðlum og sagði meðal annars að hann væri ánægður með að sjá hann sameinast fjölskyldu sinni.

Auglýsing

Hann bætti við að mál Abd el-Fattah hefði verið „forgangsmál ríkisstjórnar hans frá því hún tók við völdum.“

Í kjölfar komu hans hafa hins vegar verið dregnar fram fjölmargar eldri færslur Abd el-Fattah á samfélagsmiðlum sem vakið hafa verulegan ugg og hörð viðbrögð, bæði meðal stjórnmálamanna og almennings.

Hann fékk breskan ríkisborgararétt á grundvelli fjölskyldusameiningu, nánar tiltekið vegna þess að móðir hans, Laila Soueif, var fædd í Bretlandi.

„Ef við náum ekki til lögreglumannanna, þá skulum við finna hryðjuverkahóp til að drepa börnin þeirra og pynta mæður þeirra“

Samkvæmt breskum lögum á þeim tíma gat einstaklingur sjálfkrafa öðlast ríkisborgararétt vegna foreldris, jafnvel þótt viðkomandi væri fullorðinn og búsettur erlendis.

Beinar hvatningar til ofbeldis

Í færslum á Twitter (nú X) frá árunum 2007–2012 lýsti Abd el-Fattah ítrekað stuðningi við ofbeldi og hvatti til manndrápa.

Í færslum sínum skrifaði hann meðal annars:

“dear zionists please don’t ever talk to me, I’m a violent person who advocated the killing of all zionists including civilians”

Í annarri færslu sama ár sagði hann:

“yes, I consider killing any colonialists and specially zionists heroic, we need to kill more of them”

Í enn annarri færslu lýsti hann hatri í garð hvíts fólks:

“fucking hate white people”

Einnig liggja fyrir færslur þar sem hann hvatti til árása á lögreglu. Í tísti frá ágúst 2011, þegar óeirðir stóðu yfir í London, skrifaði hann:

“go burn the city or downing street or hunt police u fools”

Í arabísku sem síðar hefur verið þýtt af fjölmiðlum, sagði hann meðal annars:

„Ef við náum ekki til lögreglumannanna, þá skulum við finna hryðjuverkahóp til að drepa börnin þeirra og pynta mæður þeirra.“

Og hefur einnig talað um samkynhneigða sem „dirty homosexuals“

Ummæli Starmer rifjuð upp

Í umræðunni hefur einnig verið rifjuð upp ræða forsætisráðherrans Keir Starmer, þar sem hann gagnrýndi fangelsun Abd el-Fattah í Egyptalandi og sagði hann hafa verið „fangelsaðan fyrir það eitt að birta færslur á samfélagsmiðlum“.

Sú framsetning hefur sætt harðri gagnrýni.

Gagnrýnendur benda á að á sama tíma og Starmer fordæmdi fangelsun hans vegna samfélagsmiðlafærslna í þessu tilviki, hafi stjórnvöld í Bretlandi á hans valdatíma handtekið tugi einstaklinga daglega vegna færslna á netinu, meðal annars í tengslum við hatursorðræðu, ógnanir og öfgafullt efni.

Fullyrt er að allt að 35 manns séu handteknir að meðaltali á dag vegna slíkra brota en Nútíminn hefur áður fjallað um málið.

Þetta er fjöldinn sem breska lögreglan handtekur daglega fyrir „móðgandi færslur á netinu“ – Sláandi tölur

Þessi samanburður hefur verið notaður til að saka forsætisráðherrann um hræsni í málinu og að viðbrögð hans við komu Abd el-Fattah til Bretlands samræmist illa þeirri stefnu sem bresk stjórnvöld framfylgja gagnvart eigin ríkisborgurum.

ÞEss má geta að rithöfundurinn Graham Linehan var handtekinn við komu til Heathrow flugvallar af vopnaðri lögreglu eftir að hafa sett inn tíst þar sem hann hæddist að trans fólki.

Kallað eftir aðgerðum

Leiðtogi Reform UK, Nigel Farage, hefur kallað eftir því að bresk stjórnvöld afturkalli ríkisborgararétt Abd el-Fattah og vísi honum úr landi.

Þá hafa áhrifamenn innan Íhaldsflokksins, þar á meðal Kemi Badenoch, gagnrýnt harðlega að honum hafi verið fagnað opinberlega án þess að þessi ummæli væru tekin til skoðunar.

Bresk stjórnvöld hafa sagt að Abd el-Fattah sé breskur ríkisborgari og að unnið hafi verið að lausn hans úr haldi í Egyptalandi af hálfu bæði núverandi og fyrri ríkisstjórna.

Ekki hefur verið greint frá því hvort endurskoðun á stöðu hans sé hafin.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing