Apple flytur framleiðsluna til Indlands

Apple er byrjað að flytja alla framleiðslu sína á iPhone símum sem ætluð er fyrir Bandaríkjamarkað til Indlands samkvæmt frétt sem birt er á vef Guardian. Áætlanir gera ráð fyrir að það hafist fyrir lok árs 2026 og eru viðbrögð Apple við tollastríði Bandaríkjanna og Kína.

Tollastefna Trumps Bandaríkjaforseta, sem hann kallaði „reciprocal tariffs“ (gagnkvæma tolla), miðar að því að jafna viðskiptakjör milli Bandaríkjanna og annarra ríkja. Kína, sem framleiðir um 80% af iPhone-símum Apple ákvað að bregðast við tollum Trumps með því að setja á gagnkvæma tolla á bandarískar vörur.

Auglýsing

Óvíst er hvaða áhrif þetta mun hafa á bandaríska neytendur þar sem Apple gæti kosið að taka aukin kostnað á sig til að viðhalda markaðshlutdeild félagsins á farsímamarkaði. Fjöldi annarra framleiðenda er einnig að huga að flutningum og eru Indland, Víetnam og Thailands á meðal þeirra landa sem framleiðendur leita til.

Haldi tollastríðið áfram mikið lengur er ljóst að Kína þarf að finna nýja markaði fyrir framleiðslugetu sína þar sem útflutningur þeirra til Bandaríkjanna er um 400 milljarðar Bandaríkjadala eða 15% af öllum útflutningi Kínverja.

Titringur hefur verið á hlutabréfamörkuðum eftir að Trump tilkynnti um nýja tollastefnu en S&P 500 vísitalan hefur þó aðeins lækkað um 5,7% það sem af er ári. Samkvæmt aðalsamningamanni Bandaríkjanna í tollamálum, Jamieson Greer, að þá hafa um 50 lönd óskað eftir óskað eftir samningaviðræðum við Bandarísk stjórnvöld.

Engar fréttir hafa borist frá Íslenskum stjórnvöldum um hvort að Ísland hafi óskað eftir tollaviðræðum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing