Tæknirisinn Apple hefur sigrað í baráttu sinni gegn breskum stjórnvöldum, sem vildu málaferlum stjórnvalda gegn fyrirtækinu yrði haldið leyndum frá almenningi.
Þetta mál er hluti af stærri baráttu breskra stjórnvalda, sem vilja fá aðgang að dulkóðuðum notendagögnum um allan heim, þ.m.t. frá Íslendingum.
Forsætisráðherrann Keir Starmer hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir þessa stefnu, sem lýst hefur verið sem „fordæmalausri árás“ á friðhelgi einkalífs.
Höfnuðu kröfu um leynileg réttarhöld
Sjálfstæður dómstóll, Investigatory Powers Tribunal, hafnaði kröfu innanríkisráðuneytisins um að öllum upplýsingum um málið yrði haldið leyndum frá almenningi.
Ágreiningurinn snýst um svonefnt „Advanced Data Protection“ (ADP) kerfi Apple, sem tryggir hámarks öryggi og dulkóðun notendagagna.
Apple fjarlægði þessa vernd úr breskum iPhone tækjum í febrúar, eftir að hafa fengið formlega kröfu frá breska ríkinu um að veita stjórnvöldum svokallaðar bakdyr (backdoor access) að gögnum sem geymd eru á skýjaþjónustu fyrirtækisins.
Segja að um þjóðaröryggi sé að ræða
Ráðuneytið hélt því fram að opinber birting málsins gæti ógnað þjóðaröryggi, en dómstóllinn vísaði því á bug og sagði að opin réttarhöld væru grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi.
Nokkur mannréttindasamtök studdu þá afstöðu, þar á meðal Big Brother Watch og Open Rights Group.
Apple hefur ítrekað að fyrirtækið hafi aldrei veitt stjórnvöldum beinan aðgang að gögnum og aldrei búið til neinar „bakdyr“ í vörum sínum.
Málið hefur vakið alþjóðlega athygli og forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, líkti bresku kröfunni við dulkóðunarstefnu kínverskra stjórnvalda.
Þá hafa bandarískir þingmenn hvatt til þess að leyniþjónusta Bandaríkjanna komi að málinu vegna hugsanlegra afleiðinga fyrir notendur um allan heim.
Réttarhöldin verða því fyrir opnum dyrum og við bíðum eftir niðurstöðu þeirra en ólíklegt þykir að Apple muni gefa breskum stjórnvöldum aðgang að gögnum notenda um allan heim þar sem það myndi líklega missa stóran hluta viðskiptavina sinna um heim allan.