Annar árásarmannanna sem framdi fjöldamorð á Hanukkah hátíð gyðinga á Bondi Beach í Sydney hafði áður verið til rannsóknar hjá áströlsku leyniþjónustunni ASIO vegna tengsla við hryðjuverkasamtökin Íslamska ríkið.
Þetta staðfesta áströlsk yfirvöld að sögn GB News.
Rannsakaður vegna stuðnings við hryðjuverkasamtök
Maðurinn, Naveed Akram, 24 ára, var rannsakaður af Australian Security Intelligence Organisation í um sex mánuði árið 2019 vegna stuðnings hans við Íslamska ríkið.
ASIO og lögreglan í Nýja Suður-Wales staðfestu að hann hefði verið kunnur yfirvöldum, en ekki talinn ógna almannaöryggi á þeim tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum telja hryðjuverkasérfræðingar að Naveed og faðir hans, Sajid Akram, 50 ára, hafi báðir lýst yfir hollustu við hryðjuverkasamtökin.
Vopn, ISIS-fánar og sprengjubúnaður
Sajid Akram, sem rak lítið fyrirtæki og kom til Ástralíu frá Pakistan árið 1998 á námsmannavegabréfi, var með leyfi til að eiga sex skotvopn.
Lögreglan í Nýja Suður-Wales segir að í bifreið feðganna hafi fundist tveir svarthvítir fánar tengdir Íslamska ríkinu, auk þess sem þar hafi verið sprengjubúnaður.
Að minnsta kosti 16 manns létust í árásinni, sem yfirvöld hafa skilgreint sem hryðjuverk.
Sajid Akram var skotinn til bana á vettvangi, en Naveed var fluttur á sjúkrahús með skotsár á handlegg og hendi.
Að minnsta kosti 27 manns eru enn á spítala vegna áverka sem þeir hlutu í árásinni.
Hetjuleg afskipti vegfaranda
Í myndskeiðum sem hafa farið víða á samfélagsmiðlum sést hvernig Ahmed al Ahmed, 43 ára, ræðst á einn árásarmannanna og nær að slíta byssu úr höndum hans.
Ahmed hefur gengist undir skurðaðgerð vegna áverka sinna og hefur safnast rúm yfir ein milljón dollara í framlögum frá almenningi fyrir hann.
Hundruð manna hafa safnast saman við Bondi Pavilion síðustu daga til að minnast fórnarlamba árásarinnar, leggja niður blóm og votta samúð sína.