Árásarmaðurinn gaf sig fram – sænski fjölskyldufaðirinn enn alvarlega slasaður eftir hrottalega árás í Kaupmannahöfn

Nýjar upplýsingar hafa borist í málinu um hinn 32 ára sænska knattspyrnuáhugamann Christian Zedig, sem varð fyrir hrottalegri árás á aðdáendasvæði við Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn fyrr í vikunni.

Kaupmannahafnarlögreglan greindi frá því á föstudagsmorgun að maðurinn sem hafði verið eftirlýstur í tengslum við árásina hafi nú gefið sig sjálfur fram við lögreglu.

Auglýsing

„Sá handtekni er grunaður um ofbeldi og verður leiddur fyrir dómstól,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.

Málið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að eiginkona Zedigs birti hjartnæma færslu þar sem hún gaf sterklega í skyn að eiginmaður hennar væri í lífshættu. Færslan varð til þess að margir töldu að hann hefði látist, en það hefur ekki verið staðfest.

Eiginkona sænsks knattspyrnuáhugamanns stígur fram eftir hrottalega árás í Kaupmannahöfn – segir líf hans hanga á bláþræði

Liggur enn á sjúkrahúsi

Samkvæmt nýrri umfjöllun Aftonbladet liggur Christian Zedig enn á sjúkrahúsi og er alvarlega slasaður, en lögreglan hefur ekki viljað tjá sig nánar um ástand hans.

Árásin átti sér stað á þriðjudagskvöld á Íslandsbryggju, þar sem stuðningsmenn höfðu safnast saman til að horfa á leik milli Noregs og Fílabeinsstrandarinnar á risaskjá vegna heimsmeistarakeppninnar.

Viðburðurinn var stöðvaður þegar átök brutust út í miðjum leik og fann lögregla Zedig illa slasaðan á vettvangi. Hann var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Málið hefur vakið mikla umræðu í Svíþjóð og Danmörku, meðal annars vegna þess hversu lítið hafði verið fjallað um það í fyrstu og vegna dramatískrar færslu eiginkonunnar.

Hinn grunaði verður leiddur fyrir dómara í Kaupmannahöfn síðar í dag.

Ekki fyrsta ofbeldisatvikið

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem alvarlegt ofbeldi brýst út á sama svæði við Íslandsbryggju. Aðeins viku áður höfðu um 30 manns lent í fjöldaslagsmálum á sama stað þegar Belgía og Íran mættust, með þeim afleiðingum að stöðva þurfti útsendinguna.

Skipuleggjendur viðburðanna, Fan Park og TV2, sögðu þá að öryggi gesta væri í forgangi og að gripið yrði til ráðstafana til að koma í veg fyrir sambærileg atvik. Nýjasta árásin hefur hins vegar vakið spurningar um hvort öryggisgæsla á svæðinu sé nægjanleg.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing