Tveir eru látnir og fjórir alvarlega særðir eftir hryðjuverkaárás við Heaton Park Hebrew Congregation samkomuhúsið í Crumpsall, Manchester, á Yom Kippur, einum helgasta degi gyðinga.
Atvikið átti sér stað klukkan 9:31 að morgni að staðartíma en sagt er frá því að árásarmaður hafi ekið inn í hóp fólks og hóf svo að ráðast á fólk með hnífi fyrir utan samkomuhúsið.
Árásarmaðurinn skotinn til bana
Árásarmaðurinn reyndi að ryðjast inn í bygginguna en viðstöddum tókst að læsa dyrunum og verja þannig sem sem hafði safnast saman.
Vopnaðir lögreglumenn komu fljótt á vettvang og skutu árásarmanninn til bana aðeins sjö mínútum eftir að tilkynnt var um atburðinn.
Grunsamleg tæki á líkama hans sem lögregla sagði að væri sprengjubelti, tafði staðfestingu á dauða hans, en síðar var það staðfest að hann væri látinn.
Sprengjubeltið olli skelfingu
Á myndum sést árásarmaðurinn með óþekkt tæki spennt um mittið og var talið að um sprengjubelti væri að ræða.
Sprengjusveitir unnu lengi á vettvangi og notuðu vélmenni til að rannsaka bæði líkama hans og bíl sem hann notaði.
Sérfræðingar vilja ekki segja hvort beltið hafi verið raunverulegt eða eftirlíking af sprengibúnaði í þeim tilgangi að skapa skelfingu.
Lögregla staðfestir hryðjuverk
Laurence Taylor, yfirmaður hryðjuverkadeildar, staðfesti að árásin væri flokkuð sem hryðjuverk.
Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við rannsóknina, en að öðru leyti hefur lögregla ekki viljað gefa upp frekari upplýsingar um árásarmanninn.
Viðbrögð leiðtoga og samfélagsins
Forsætisráðherra Bretlands sagði árásina „hryllilega“ og boðaði til neyðarfundar.
Hann lýsti yfir stuðningi við gyðingasamfélagið og sagði það „sérstaklega skelfilegt að þetta hafi átt sér stað á Yom Kippur“.
Konungurinn, ríkisstjórn og leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa fordæmt árásina harðlega.
Borgarstjóri Manchester, Andy Burnham, staðfesti að einn hinna látnu væri öryggisvörður við samkunduhúsið.
Gyðingasamfélagið skelfingu lostið
Í Manchester býr næststærsta gyðingasamfélag Bretlands og árásin hefur vakið óhug í borginni.
Fjölmörg vitni lýstu skelfilegum aðstæðum og sögðu árásarmanninn beina athygli sinni að fólki sem bar kippu.
Öryggisgæsla aukin um allt land
Öryggisráðstafanir hafa verið auknar við samkunduhús og aðra viðkvæma staði um allt land.
Sérsveitir voru sendar á vettvang og sérstök viðbúnaðaráætlun virkjuð.
Árásin er sögð svipa mikið til aðferða sem áður hefur verið beitt í hryðjuverkum á borð við London Bridge og Westminster árið 2017.
BREAKING:
🇬🇧 Moment police shot the suspect following reports of a mass stabbing outside a Manchester synagogue pic.twitter.com/ugKF2Je2yE
— Megatron (@Megatron_ron) October 2, 2025