Ari Edwald hefur samþykkt að leiða framboðslista Miðflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum. Ari greinir frá þessu í yfirlýsingu sem hann birti á samfélagsmiðlum fyrr í dag.
Segist finna samhljóm með Miðflokknum
Ari, sem hefur lengi verið tengdur Sjálfstæðisflokknum, segir skoðanir sínar ekki hafa breyst, en að hann finni nú mestan samhljóm með Miðflokknum og treysti honum best til að koma áherslum sínum í framkvæmd. Hann telur reynslu sína af rekstri stórra fyrirtækja, félagasamtaka og pólitísku starfi geta nýst vel í verkefnum borgarinnar.
Langur ferill í atvinnulífi og stjórnsýslu
Ari Edwald lauk lagaprófi árið 1988 og MBA-námi í Bandaríkjunum 1991. Hann starfaði síðar sem aðstoðarmaður ráðherra, ritstjóri Viðskiptablaðsins, fyrsti framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og forstjóri 365 miðla. Þá gegndi hann starfi forstjóra Mjólkursamsölunnar frá 2015 og hafði meðal annars forystu um uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis tengt skyri.
Frá ársbyrjun 2022 hefur hann starfað sjálfstætt við lögmennsku og ráðgjöf.
Gagnrýnir borgarstjórnarstefnu
Í yfirlýsingu sinni gagnrýnir hann stefnu meirihlutans í borginni. Hann segir leikskólakerfið bregðast fjölskyldum, kallað sé eftir umbótum í grunnskólum og að bílastæði séu orðin að forréttindum. Þá lýsir hann andstöðu við þéttingu byggðar og kostnaðarsömum áætlunum um borgarlínu.
„Það er einboðið að taka þurfi til í rekstri borgarinnar og setja grunnþjónustuna í forgang,“ segir hann og bætir við að borgarbúar vilji að hlustað sé á þarfir þeirra í stað þess að kerfið haldi áfram að þenjast út.
Segist tilbúinn að snúa við stöðunni
Ari Edwald segir sig hafa reynslu af því að snúa við erfiðum aðstæðum og vera tilbúinn að leggja sig allan fram í baráttunni fyrir breytingum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að hans mati eigi borgarbúar betra skilið og tækifærið til breytinga sé núna í komandi borgarstjórnarkosningum.