Breiðfylking heilbrigðisstarfsfólks á Íslandi stóð fyrir opnum fundi um málefni heilbrigðisþjónustu og áttu öll framboð fulltrúa á fundinum.
Ræða Arnars Þórs um Covid ástandið á Íslandi stóð þó upp úr en þar segir hann að frambj´ðendurnir Alma Möller og Willum Þór beri stóra ábyrgð en Alma var hluti af Þríeykinu svokallaða en Willum tók við embætti heilbrigðisráðherra í nóvember 2021.
Arnar segir að í Covidinu hafi allri hefðbundinni læknisfræði verið hent út um gluggann og að aðför hafi verið gerð að réttar ríkinu sem enn hafi ekki verið gerð upp á Íslandi þó slíkt sé byrjað í öðrum löndum.
Segir hann einnig að heilbrigðisvandi þjóðarinnar hafi verið aukinn gífurlega og að bæði andleg og líkamleg heilsa landsmanna hafi versnað í kjölfarið á misheppnuðum aðgerðum.
Arnar segir svo að mikilvægt sé að einfaldlega koma því fólki í burtu sem er ábyrgt fyrir því sem gerðist í þessu ástandi en þar beinir hann orðum sínum til Willums og Ölmu enda hafi þau þegar svikið öll loforð sem þau séu að gefa á fundinum.
Hægt er að sjá ræðu Arnars hér fyrir neðan.
Þegar ég sé gott real talk, þá reyni ég að birta það. Hér er @ArnarrThor hjá Lýðræðisflokknum að pakka saman Ölmu og Willum fyrir ófyrirgefanlega framgöngu þeirra í Covid fárinu og afleiðingum þess.
Sjálfur mun ég aldrei hætta að fjalla um þessi mál. pic.twitter.com/9j5GeaGAkk
— Arnar Arinbjarnarson (@arnarar) November 23, 2024