Í nýjum þætti Fullorðins ræðir Ásgrímur Guðnason grínisti ,betur þekktur sem Ási Guðna, um reynslu sína af því að fá óumbeðin skilaboð og kynferðislegar myndir.
Hann segir að skilaboðin komi oft frá miðaldra og eldri konum og að fjöldinn hafi aukist eftir að fylgjendum hans fjölgaði.
Ási segir í gamansömum tóni um að hann „fagni“ skilaboðunum en ítrekar jafnframt að hann hafi aldrei sjálfur sent kynferðislegar myndir, þvert á það sem hann grínast með í þættinum.
Hann segir aldrei hafa tekið slíkar myndir af sér og skilji ekki af hverju sumir geri það.
Kidda lýsir því að hún hafi sjálf fengið tippamynd senda frá „mjög þekktum einstaklingi á Íslandi“ og segir það hafa komið henni á óvart.
Hún segir slíkar myndir bara alls ekki sexy á nokkurn hátt.
Ásgrímur hefur fengið kynferðisleg myndbönd frá konum
Ásgrímur segir að þó konur tali gjarnan um að fá mikið af óumbeðnum tippamyndum, þá hafi hann sjálfur fengið óumbeðnar kynferðislegar myndir og myndbönd send í skilaboðum.
Hann segir að sumt af þessu komi frá konum sem hann hafi aldrei verið í samskiptum við áður.
Aðspurður hvort honum finnist slíkar sendingar aðlaðandi segir Ásgrímur að mynd af píku væri ekki sexy fyrir hann.
Hann segir þó hafa fengið kynferðisleg myndbönd sem hafi „verið allt í lagi“, en þau séu ekki myndir sem eru bara af kynfærunum sjálfur.
Ási tekur þó fram að sjálfur sjái hannalmennt lítinn tilgang í að senda slíkar myndir af sjálfum sér.
Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.