Associated Press hefur birt umfjöllun þar sem því er haldið fram að keppnislið Evrópuríkja á Vetrarólympíuleikunum endurspegli ekki fjölbreytni þeirra samfélaga sem þau koma frá. Sérstaklega eru nefnd Svíþjóð, Þýskaland, Frakkland og Sviss, þar sem lið í vetraríþróttum eru sögð „yfirgnæfandi hvít“, þrátt fyrir mikinn fjölda innflytjenda síðustu áratugi.
Vetrarólympíuleikarnir í Mílanó og Cortina fara fram dagana 6.–22. febrúar.
Svíþjóð nefnt sem dæmi
Í greininni er Svíþjóð nefnt sem eitt helsta dæmið. Þar er bent á að lið landsins sé nánast eingöngu skipað íþróttamönnum af sænskum uppruna, þrátt fyrir að um tvær milljónir íbúa landsins séu fæddir eða eigi uppruna sinn erlendis. Undantekning sé meðal annars íshokkíleikmaðurinn Mika Zibanejad, sem á föður af írönskum uppruna.
Associated Press ber saman samsetningu vetraríþróttaliða og landsliða í fótbolta og körfubolta, þar sem fjölbreytni sé mun meiri.
Snjóbrettakona upplifði sig utangarðs
Í greininni er fjallað um Maryan Hashi, þrítuga snjóbrettakonu sem flutti til Svíþjóðar frá Sómalíu árið 2009. Hún segir að hún hafi upplifað sig sem „útlending“ þegar hún hóf að stunda snjóbrettaiðkun í norðurhluta landsins og lýsir snjóbrettaiðkum sem hvítri íþrótt.
Hashi segir skort á upplýsingum, fyrirmyndum og tengslum í samfélaginu hafa gert þátttöku í vetraríþróttum erfiða, þrátt fyrir að hafa tekið þátt í verkefni sveitarfélagsins Skellefteå sem ætlað var að auðvelda innflytjendum að aðlagast samfélaginu.
Menningarlegt fremur en kerfisbundið vandamál
Josef Fahlén, prófessor í íþróttauppeldi við háskóla í Svíþjóð, segir í samtali við AP að skortur á fjölbreytni í vetraríþróttum sé ekki fyrst og fremst íþróttatengt vandamál heldur menningarlegt. Hann bendir á að börn velji gjarnan íþróttir sem foreldrar þeirra þekkja og hafi stundað.
Hann tekur sem dæmi sænska knattspyrnumanninn Alexander Isak, sem á foreldra frá Erítreu, og segir eðlilegt að hann hafi ratað í fótbolta, þar sem sú íþrótt sé útbreidd í heimalandi foreldra hans, ólíkt skíðaíþróttum.
Yfirvöld vísa í aðgerðir sem þegar eru í gangi
Sænska skíðasambandið segist vilja gera betur í málefnum fjölbreytni og inngildingar. Bent er á að vetraríþróttir geti verið kostnaðarsamar, bæði vegna búnaðar, ferðalaga og aðgangsgjalda.
Í því samhengi er nefnt verkefnið ‚Alla På Snö, sem var sett á laggirnar árið 2008 og hefur veitt tugþúsundum barna ókeypis aðgang að búnaði og skíðasvæðum. Þá er einnig vísað til svokallaðs ‚Leisure Bank‘ verkefnis, þar sem almenningi býðst að fá vetraríþróttabúnað lánaðan endurgjaldslaust til skamms tíma.
AP telur ekki nóg gert
Þrátt fyrir þessi verkefni telur Associated Press að aðgerðirnar gangi ekki nógu langt, meðal annars þar sem þær beinist ekki sérstaklega að innflytjendum. Samkvæmt miðlinum sýni þetta að vetraríþróttir í Evrópu séu enn langt frá því að endurspegla samfélagslega fjölbreytni landanna sem taka þátt í leikunum.