Kílómetraskattur sem tekur gildi um áramót hefur vakið mikla óánægju meðal bíleigenda.
Í kjölfarið hafa vaknað áhyggjur af því að skatturinn geti skapað hvata til svika, meðal annars með ólöglegum breytingum á kílómetramælum bifreiða.
Sýnt hversu einföld svikin eru
Í fréttaskýringu bandarísks sjónvarpsmiðils er sýnt hvernig vélvirki getur á örfáum mínútum breytt kílómetrastöðu bíls með sérstöku tölvutæki.
Búnaðurinn er sagður auðfáanlegur á netinu og kostar um 200 dollara.
Með því að tengja tækið beint við rafkerfi bílsins er hægt að lækka eða hækka skráða aksturslengd án teljandi fyrirhafnar.
Áhyggjur í tengslum við nýjan skatt
Með tilkomu kílómetraskatts óttast sumir að freisting til að fikta við kílómetramæla aukist, þar sem skattheimta byggist á skráðum akstri ökutækja.
Breytt kílómetrastöða getur haft áhrif á bæði verð, ástand og öryggi bifreiða, auk þess sem Nútíminn minnir á að slíkt er refsiverð samkvæmt lögum.