Bandaríkjastjórn kemur Pete Hegseth til varnar

Hvíta Húsið hefur komið Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, til varnar í kjölfar fregna um að hann hafi deilt viðkvæmum upplýsingum um hernaðarárás á Hútí-uppreisnarmenn í Jemen í mars 2025 í einkaspjalli á Signal og Newsweek greinir frá.

Anna Kelly, aðstoðarblaðafulltrúi Hvíta Hússins, sagði: „Sama hversu oft gamalgrónir fjölmiðlar (e. Lecacy media) reyna að endurvekja sömu ekki-fréttina, þá geta þeir ekki breytt þeirri staðreynd að engum leynilegum upplýsingum var deilt.“

Auglýsing

Hún kenndi aðilum, sem hafa verið nýlega reknir vegna lekamála, um að mistúlka sannleikann til
að grafa undan stefnu Donalds Trumps. Þá hefur talsmaður Pentagon sagt að um væri að ræða gamla frétt og hefur hafnað því að leynilegum upplýsingum hafa verið lekið.

„Þetta er það sem fjölmiðlar gera. Þeir taka nafnlausar heimildir og reyna að rústa fólki“

Bandaríkjaforseti, Donald Trump, hefur lýst yfir áframhaldandi trausti á Hegseth, en blaðafulltrúi hans, Karoline Leavitt, sagði fyrr í dag að Trump styðji hann eindregið og hrósaði honum fyrir frábært starf.

Sjálfur hefur Hegseth bent á að gagnrýnin á hann komi ekki úr trúverðugri átt. „En óvænt, við erum með starfsmenn sem voru reknir fyrir leka og þá koma skyndilega fram fullt af árásargreinum… Þetta er það sem fjölmiðlar gera. Þeir taka nafnlausar heimildir frá óánægðum fyrrverandi starfsmönnum og reyna svo að rústa fólki og eyðileggja orðstír þess.“

Ítarlega hefur verið fjallað um ásakanir í garð Hegseth á RÚV, Vísi og Morgunblaðinu en engir af þessum miðlum hafa sagt frá svörum Bandaríkjastjórnar varðandi hin meintu öryggisbrot.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing