Bandarísk kona dæmd fyrir manndráp í Þýskalandi – Stakk innflytjanda sem elti hana og reyndi að nauðga henni

Þýskur dómstóll hefur dæmt bandaríska konu, Fallyn B., í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp eftir að hún stakk 64 ára gamlan mann frá Erítreu til bana.

Maðurinn hafði áreitt hana kynferðislega á göngustíg við aðallestarstöðina í Kaiserslautern í júní 2024 og sagði konan að hún hafi verið viss um að maðurinn hafi ætlað að nauðga sér.

Auglýsing

Atvikið vakti mikla athygli í Þýskalandi og víðar, enda olli það miklum umræðum um sjálfsvörn, réttarkerfið og stöðu kvenna sem verða fyrir kynferðisofbeldi á almannafæri.

Myndbandsupptökur sýndu að maðurinn hafði gripið í rass konunnar og elt hana niður í undirgöng þar sem átök brutust út.

Þar dró hún upp hníf og stakk hann einu sinni í bringuna með þeim afleiðingum að hann lést.

Dómurinn: Ekki sjálfsvörn

Dómstóllinn í Kaiserslautern úrskurðaði að þrátt fyrir að kynferðisleg áreitni hefði átt sér stað, hefði konan ekki verið í „lífshættu“ þegar hún beitti hnífnum.

„Þegar þú er ekki lengur í neyðaraðstæðum verður þú sjálfur að árásaraðila,“ sagði dómarinn við uppkvaðningu dómsins.

Hún var dæmd sem ungmenni, og fékk því skilorð, vegna þess að hún var aðeins 20 ára þegar brotið átti sér stað, var með hreina sakaskrá og sýndi iðrun.

Dómurinn kvað einnig á um 500 klukkustunda samfélagsþjónustu.

„Fórnarlambið“ með fjögur kynferðisbrot á bakinu

Maðurinn sem hún stakk, Alem T., hafði áður verið sakfelldur fyrir fjögur kynferðisbrot og hlotið sektir fyrir önnur brot.

Þrátt fyrir það taldi dómurinn að Fallyn B. hefði gengið of langt með því að grípa til vopnsins.

Málið hefur vakið harða gagnrýni, sérstaklega meðal þeirra sem telja að réttarkerfið í Vestur Evrópu geri lítið úr sjálfsvörn kvenna gegn kynferðisofbeldi, sérstaklega þegar gerendur eru af erlendum uppruna.

Málið hefur einnig vakið áhyggjur um öryggi bandarískra ríkisborgara erlendis, þar sem sjálfsvarnarlög í Evrópu eru mun þrengri en í Bandaríkjunum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing