Barnamorðingi sem skilgreinir sig sem transkona látinn laus 30 árum fyrir áætlaðan tíma

Trans einstaklingur sem hlaut 55 ára fangelsisdóm fyrir að kyrkja 11 mánaða barn hefur verið látinn laus á reynslulausn um 30 árum fyrr en upphaflegur dómur gerði ráð fyrir.

Dæmdur fyrir morð á ungbarni

Autumn Cordellioné var dæmdur árið 2002 fyrir að hafa myrt 11 mánaða gamla stúlku, Faith Lee, með því að kyrkja hana. Cordellioné var þá 18 ára gamall.

Auglýsing

Cordellioné var látin laus í desember síðastliðnum og sneri aftur til heimabæjar síns í Indiana fylki.

Yfirvöld fengu ekki tilkynningu

Saksóknari í fylkinu segir að embættið hafi ekki fengið neina tilkynningu um að Cordellioné hafi verið látinn laus.

Málið komst fyrst í fréttir eftir að einstaklingur sem þekkti til dómsins frá árinu 2002 rakst á Cordellioné í bænum og tilkynnti það til yfirvalda.

Segist bæði sjá eftir glæpnum og neitar sök

Í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum segir Cordellioné að hann hafi hafi „afplánað sinn dóm“ og lýsir dvölinni í fangelsi sem erfiðri.

Á sama tíma heldur hann því fram að hann sé saklaus af morðinu.

Ágreiningur og mál gegn yfirvöldum

Á undanförnum árum hefur Cordellioné staðið í ýmsum lagadeilum. Þar á meðal höfðaði hann mál gegn fangelsisyfirvöldum í Indiana vegna banns við svokölluðum kynleiðréttingaraðgerðum fyrir fanga.

Dómstóll gaf út bráðabirgðaúrskurð þar sem yfirvöldum var gert að grípa til aðgerða til að verða við beiðni hans en neituðu og sögðu að það kæmi ekki til greina að peningur skattgreiðenda færi í slíkar aðgerðir fyrir morðingja.

Einnig hefur Cordellioné höfðað mál upp á 3,5 milljónir dollara gegn forsetanum, Donald Trump, vegna meintra hatursfullra ummæla sem hann segir hafa orðið til þess að hann varð fyrir ofbeldi í fangelsinu.

Ný lög um tilkynningar taka gildi síðar

Lausn Cordellioné hefur vakið umræðu í Indiana fylki þar sem ný lög voru nýlega samþykkt sem kveða á um að yfirvöld skuli fá tilkynningu með góðum fyrirvara þegar hættulegir afbrotamenn eru látnir lausir.

Þau lög taka þó ekki gildi fyrr en 1. júlí og áttu því ekki við þegar Cordellioné var látinn laus.

Yfirvöld hafa sagt að öryggi almennings og þolenda eigi að vera í forgangi þegar slíkir einstaklingar eru látnir lausir.

Enginn virðist geta svarað hvers vegna hann var látinn laus svo löngu áður en upprunalega var gert ráð fyrir.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing