BBC biður Donald Trump afsökunar eftir falsfréttir sínar – Segja þó enga ástæðu vera til að fara í meiðyrðamál

BBC hefur beðist afsökunar á því hvernig ræðu Donalds Trump frá 6. janúar 2021 var breytt í tveimur mismunandi þáttum.

Fjölmiðlafyrirtækið viðurkennir að um hafi verið að ræða „mistök í dómgreind“ en fullyrðir samt að engin lagaleg skilyrði séu fyrir meiðyrðakröfu af hálfu Trump.

Ræðubútum blandað saman

Auglýsing

Málið kom fyrst upp vegna Panorama þáttarins Trump: A Second Chance? sem sýndur var árið 2024.

Þar var ræðubútum frá ólíkum stöðum í ræðu blandað saman á þann hátt að áhorfendur fengu á tilfinninguna að Trump hefði hvat stuðningsmenn sína til ofbeldis.

Í yfirlýsingu BBC sagði að klippingin hefði óvart skapað þann misskilning að verið væri að sýna samfellda ræðu.

„BBC biður forsetann afsökunar á þessu dómgreindarleysi,“ sagði í tilkynningu.

Þættinum verður ekki sjónvarpað aftur á neinum miðlum BBC og hann hefur verið fjarlægður af vefnum.

Trump hafði hótað málsókn

Trump hafði hótað fjölmiðlinum málsókn og BBC staðfestir að lögmenn stofnunarinnar hafi svarað bréfi frá lögfræðiteymi forsetans.

Samir Shah, stjórnarformaður BBC, sendi jafnframt persónulegt bréf til Hvíta hússins þar sem hann biðst afsökunar og ítrekar að stofnunin harmi málavexti.

Ný ásökun vegna Newsnight

Málið versnaði enn frekar í dag þegar upp komst að ræðu Trump hafði verið breytt í annað sinn, að þessu sinni í Newsnight þætti sem sýndur var í júní 2022.

Þar virtist Trump segja ákveðnar setningar í samfelldri röð sem í raun voru teknar af mismunandi stöðum í ræðunni.

Uppljóstrari sagði við Telegraph að starfsmaður hefði bent á misræmið á ritstjórnarfundi daginn eftir en ábendingin hefði verið hunsuð.

BBC staðfestir nú að verið sé að „skoða málið“.

Margir hafa gagnrýnt viðbrögð BBC og telja þau ekki duga til.

Breski þingmaðurinn Sir Michael Ellis sagði í viðtali við GB News að BBC væri í algjörri afneitun.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing