Beinbrot ekki tekin fyrir að nóttu til á bráðamóttöku – Þurfti að bíða sárkvalinn til morguns meðan meiðslin versnuðu sífellt

Bráðamóttakan hefur verið til umræðu undanfarið og bætist nú ný frásögn við gagnrýni á hana. Jóhannes Loftsson greinir frá reynslu sinni af heimsókn á bráðamóttöku um helgina þar sem hann segist hafa þurft að bíða í fjóra til fimm klukkustundir eftir aðstoð vegna beinbrots.

Beinbrot ekki skoðuð fyrr en klukkan átta

Samkvæmt frásögn hans datt hann í hálku um miðja nótt og hnéð aflagaðist. Þegar hann mætti á bráðamóttöku um klukkan þrjú að nóttu var honum sagt að enginn gæti skoðað hann fyrr en á næstu vakt klukkan átta um morguninn, þar sem deild sem sinnti beinbrotum væri ekki mætt til starfa fyrr en þá.

Auglýsing

Hann segir biðina hafa verið sársaukafulla og að bekkir í biðsal hafi verið með áföstum armhvílum sem gerðu honum og öðrum ókleift að leggjast niður. Að hans mati gæti það hafa aukið blæðingu inn á hnéð þar sem hann hafi ekki getað hvílt sig.

Telur vandann ekki tengjast álagi

Jóhannes bendir á að fáir hafi verið á bráðamóttökunni þessa nótt og telur að vandinn hafi ekki verið mikill fjöldi sjúklinga heldur að nær enginn hafi fengið þjónustu á þeim tíma. Þegar loks kom að honum segir hann að læknanema hafi stýrt meðhöndlun hans að mest.

Hann tekur fram að starfsfólk hafi eflaust reynt sitt besta, en telur óásættanlegt að slíkt ástand sé viðvarandi þegar um bráðaþjónustu sé að ræða.

Segir þetta ekki einsdæmi

Í frásögn sinni rifjar hann upp fleiri dæmi. Hann nefnir tilvik þar sem hann leitaði með mikinn höfuðverk sem talinn var geta bent til heilablóðfalls en beið í þrjá til fjóra tíma áður en hann hitti lækni.

Einnig segir hann frá atviki þar sem hann kom á bráðamóttöku með lífshættulega innvortis blæðingu eftir aðgerð fyrr um daginn. Hann segist hafa misst meðvitund og ekki verið skoðaður fyrr en nokkrum klukkustundum síðar. Samkvæmt mælingum hafi litlu munað að honum hafi blætt út.

Kallar eftir kerfisbreytingum

Að mati Jóhannesar er vandinn orðinn kerfislægur. Hann telur bráðamóttökuna ekki lengur standast samanburð við nágrannalönd og segir fyrsta skrefið vera að viðurkenna vandann opinberlega.

Hann leggur til að nafni bráðamóttöku verði breytt í „móttöku“ ef ekki sé hægt að tryggja bráðaþjónustu allan sólarhringinn og að almenningur verði upplýstur um að beinbrot séu ekki tekin fyrir að næturlagi ef það sé raunin svo fólk mæti ekki um miðja nótt eins og hann og þurfi að bíða til morguns.

Jóhannes telur núverandi skipulag heilbrigðiskerfisins ekki líklegt til að skila umbótum og segir sjúklinga hafa tapað rödd sinni. Að hans mati sé eina raunhæfa leiðin til breytinga að einkarekstur taki yfir rekstur bráðamóttökunnar.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing